Viðskipti innlent

Arðgreiðslurnar dragast saman um helming

Sjö fyrirtæki af fjórtán sem mynda íslensku Úrvalsvísitöluna greiða arð vegna afkomunnar á síðasta ári.

Þetta er tveimur fyrirtækjum færra en greiddu út arð í fyrra. Ef frá er skilin arðgreiðsla Landsbankans – tillaga verður lögð fram um slíkt á bankaráðsfundi hans 7. apríl næstkomandi – nema heildargreiðslurnar rúmum 31 milljarði íslenskra króna. Til samanburðar námu arðgreiðslurnar rúmum 62 milljörðum króna í fyrra. Þetta er helmingi minna en félögin greiddu vegna afkomunnar í hitteðfyrra.

Kaupþing greiðir mestKaupþing greiðir hluthöfum sínum langhæstu greiðsluna í ár, 14,8 milljarða króna. Á eftir kemur Glitnir, sem greiðir 5,5 milljarða króna.

Athygli vekur að arðgreiðslur Kaupþings eru hærri en í fyrra. Þetta er ólík þróun og hjá öðrum fyrirtækjum að Bakkavör undanskilinni, sem greiðir rúmum hundrað milljónum krónum meira en í fyrra. Eins og áður segir verða tillögur um arðgreiðslur til hluthafa Landsbankans ekki lagðar fram fyrr en á bankaráðsfundinum 7. apríl næstkomandi.

Kaupþing hefur iðulega greitt háan arð í krónum talið. Hins vegar þarf mikið til að ná upp í arðgreiðsluna í október í hitteðfyrra þegar Kaupþing greiddi hluthöfum einstaka greiðslu, tuttugu milljarða króna í formi hlutafjár í Existu.

Sumir greiða ekkertÞrjú félög sem mynda Úrvalsvísitöluna – og greiddu hluthöfum sínum háar upphæðir í arð í fyrra – greiða ekkert í ár. Það eru Marel, Exista og FL Group. Samkvæmt forsvarsmönnum Marel er ástæðan fyrir því að ekki verður greiddur út arður vegna afkomunnar í fyrra kaup félagsins á matvælavinnsluvélahluta hollensku iðnsamsteypunnar Stork.

Hin félögin tvö, FL Group og Exista, greiddu hins vegar hæstu arðgreiðslur skráðra félaga í Úrvalsvísitölunni vegna afkomunnar í hitteðfyrra. FL Group greiddi fimmtán milljarða króna en Exista tæpa ellefu milljarða króna í fyrra.

FL Group tapaði 67 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári og vinnur nú að stífum niður­skurði á rekstrarkostnaði, sem skýrir arðgreiðsluleysið nú. 

Exista hagnaðist hins vegar um sextíu milljarða króna á sama tíma. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu, sagði á aðalfundi félagsins á dögunum að aðstæður á fjármálamörkuðum hefðu ráðið um ákvörðunina að greiða ekkert nú um stundir. Breytist aðstæður til hins betra getur svo farið að ákvörðunin verði endurskoðuð og arður greiddur út síðar á árinu.

Dvergarnir fá lítið en risarnir mestSé litið til stærstu arðgreiðslnanna – sem greiðist úr sjóðum bankanna – fá stærstu hluthafarnir tæpa 4,4 milljarða króna fyrir snúð sinn.

Exista tekur stóra sneið vegna eignar­hlutar síns í Kaupþingi og Bakkavör. Félagið fær rúma 3,4 milljarða króna vegna 23 prósenta eignar sinnar í Kaupþingi og 470 milljónir króna vegna stærðar sinnar í Bakkavör – félagið er langstærsti hluthafinn með 63 prósenta eignarhlut.

FL Group, sem er stærsti hluthafinn í Glitni, tekur á sama tíma 977 milljónir króna fyrir eignarhlutinn í bankanum.

Eins og áður hefur komið fram liggur ekki fyrir hvað þeir feðgar, Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor, fá fyrir eignar­hlut sinn í Landsbankanum í nafni Samson eignarhaldsfélags en þeir sitja á tæpum 41 prósents hlut. Hagnaður bankans í fyrra nam fjörutíu milljörðum króna. Sé miðað við að arðgreiðsla verði hlutfallslega jafn há nú og í fyrra gætu arðgreiðslur feðganna numið 1,8 milljörðum króna. Hins vegar fá þeir tæpa tvo milljarða króna vegna eignar sinnar í Straumi-Burðarási.


Tengdar fréttir

Metarður að utan

Arðgreiðslur þriggja erlendra félaga sem hafa íslensk fyrirtæki í hluthafahópnum er tæplega tvöfalt hærri en sem nemur arðgreiðslum allra íslensku félaganna sem mynda Úrvalsvísitöluna í Kauphöll Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×