Framsal vatnsréttinda í Þjórsá háð virkjanaleyfi 10. desember 2007 16:26 MYND/GVA
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði ekkert framsal á vatnsréttindum hafa farið fram með samningi ríkisins og Landsvirkjunar vegna vatnsréttinda í Þjórsá sem gerður var nokkrum dögum fyrir kosningar. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, var málshefjandi og vísaði til nýrrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um framsal vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár. Sagði hún skýrsluna samfelldan áfellisdóm yfir stjórnsýslu þáverandi fjármálaráðherra, landbúnaðarráðherra og iðnaðarráðherra sem skrifuðu undir samninginn við Landsvirkjun Ríkisendurskoðun hafi gagnrýnt að samkomulagið hafi ekki verið undirritað með fyrrvara um samþykki Alþingis og að það væri brot á 40. grein stjórnarskrár og 29. grein fjárreiðulaga. Samkomulagið væri ekki bindandi fyrir ríkið. Sagði Álfheiður að ríkið hefði farið offari í málinu og ráðherrar hefðu brotið lög til þess styrkja stöðu Landsvirkjunar í samningaviðræðum við landeigendur við neðri hluta Þjórsár. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði hins vegar að í samningnum við Landsvirkjun hefði ekki átt sér stað afsal vatnsréttinda í Þjórsá. Sagði hann að það skyldi þó ekki vera að samkomulagið hafi ekki verið borið undir Alþingi þar sem aldrei hafi staðið til afsala vatnsréttindunum. Samkomulagið væri háð þeim skilyrðum að virkjanaleyfi í neðri hluta Þjórsár fengist en það hefði ekki enn gerst. Sagðist hann sammála niðurstöðu Ríkisendurskoðunar þótt hann beitti öðrum lagarökum til þess að komast að niðurstöðunni. Sagði hann Álfheiði hafa fests í eigin plotti og glæpurinn væri enginn. Ekkert framsal hefði farið fram. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins og einn þeirra sem skrifuðu undir samninginn í vor, sagði samninginn ekki hafa verið neitt leyniplagg. Yfirlýsingin hefði ekki falið í sér skuldbindingar fyrir ríkið og ríkið ætti 95 prósent vatnsréttinda í Þjórsá í gegnum svokallaðan Títansamning. Verið væri að gera úlfalda úr mýflugu en það væri í höndum núverandi ríkisstjórnar að fara yfir málið ef virkjað yrði í ánni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kvaddi sér hljóðs og minnti á að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, hefði sagt virkjanir í neðri hluta Þjórsár með álitlegri virkjanakostum. Þá sagði hann alveg ljóst af skoðun Ríkisendurskoðunar að samningurinn við Landsvirkjun hefði ekki verið bindandi fyrir ríkið. Ef slíkur samningur ætti að vera bindandi myndi hann sjá til þess að hann yrði borinn undir Alþingi. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, sagði að það væri sama hvað fjármálaráðherra segði, Landsvirkjun hefði farið með vatnsréttindin sem sín og notað samninginn í viðræðum við landeigendur. Fyrirtækið hefði gengið fram af óbilgirni. Þá sagði hann að eignarnám þyrfti að koma til til þess að ráðast í framkvæmdina. Samfylkingin hefði sagt að ekki yrði ráðist í eignarnám. Bað hann því ríkisstjórnina að slá framkvæmdina út af borðinu. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, varaði við skotgrafarhernaði í málinu. Hann væri ekki hrifinn af virkjununum þremur en ekki væru efnisleg rök fyrir því að stöðva framkvæmdir þar sem þær hefðu farið í gegnum umhverfismat. Finna þyrfti skynsamlega sáttaleið sem flestir gætu sæst á og sem hefði sem minnst umhverfisáhrif.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira