Snæfell og KR leika til úrslita 27. september 2007 22:41 Justin Shouse var besti maður vallarins í kvöld Mynd/AntonBrink
Það verða SNæfell og KR sem leika til úrslita í Powerade bikarnum í körfubolta. Snæfell lagði Njarðvík nokkuð örugglega í kvöld 85-79 þar sem liðið hafði forystu nánast allan leikinn. Snæfell byrjaði leikinn betur og hafði yfir 29-20 eftir fyrsta leikhlutann og 44-36 í hálfleik. Þeir grænu hresstust aðeins í þriðja leikhlutanum, byrjuðu hann á 9-0 rispu og útlit fyrir að liðið væri að ná yfirhöndinni. Staðan 57-55 fyrir Snæfell eftir þrjá leikhluta. Hólmararnir voru svo sterkari á endasprettinum og unnu sanngjarnan sigur. Sóknarleikur liðanna í kvöld var ekki sérlega smurður og segja má að hafi verið haustbragur á leik beggja. Snæfell var án Magna Hafsteinssonar sem verður ekki með liðinu um óákveðinn tíma og þá voru Njarðvíkingar án fyrirliða síns Friðriks Stefánssonar. Justin Shouse var besti maður vallarins í kvöld og lykilmaður í sigri Snæfells. Hann skoraði 24 stig, hitti úr 9 af 12 skotum sínum, hirti 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Jón Ólafur Jónsson skoraði 17 stig og þeir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson 13 hvor. Hjá Njarðvík var Brenton Birmingham atkvæðamestur með 24 stig og 6 stoðsendingar, Sverrir Þór Sverrisson skoraði 15 stig og hirti 6 fráköst og Jóhann Ólafsson skoraði 15 stig. Þá skoraði Charleston Long 10 stig og hirti 10 fráköst.. Það verða því KR og Snæfell sem leika til úrslita í keppninni á sunnudaginn og þar má búast við hörkuleik tveggja vel mannaðra liða.
Dominos-deild karla Mest lesið Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum Fótbolti Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Formúla 1 Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti Fleiri fréttir Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast“ „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Ítalir fóru illa með Bretana Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Skorti orku og ástríðu Orri með slitið krossband og þarf í aðgerð Sjá meira