Ítarlegar fjallað um mótvægisaðgerðirnar 4. júlí 2007 06:30 Ríkisstjórnin hefur ákvörðun um veiðiheimildir næsta fiskveiðiárs og mótvægisaðgeðir vegna fyrirsjáanlegs aflasamdráttar til meðferðar þessa dagana. Á ríkisstjórnarfundi í gær lögðu ráðherrar pólitíkina til hliðar stutta stund á meðan ljósmyndarar smelltu af þeim myndum. MYND/Vilhelm
Vinna við mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna áhrifa aflasamdráttar á sjávarbyggðir hefur tekið lengri tíma en upphaflega var ráðgert. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins vildu þingmenn Samfylkingarinnar fara betur yfir framkomnar tillögur, ekki síst efnahagsleg áhrif þeirra, án þess þó að þeir geri um þær efnislegan ágreining. Ríkisstjórnin ætlar að kynna aðgerðaáætlunina samhliða því sem sjávarútvegsráðherra greinir frá ákvörðun um veiðiheimildir næsta fiskveiðiárs. Búist var við að ákvarðanirnar yrðu opinberaðar í kjölfar ríkisstjórnarfundar í gær en af því varð ekki. Aðgerðaáætluninni er ætlað að treysta þær sjávarbyggðir sem verða fyrir mestum búsifjum vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í þorskveiðum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er unnið eftir því leiðarstefi að hafa þær eins almennar og unnt er, þó þannig að innviðir sveitarfélaganna sem verst verða úti styrkist. Helst er horft til samgöngubóta og bættra fjarskipta og miðar vinnan að því að flýta þegar ákveðnum framkvæmdum. Sem dæmi er skoðað hvort hraða megi framkvæmdum við göng um Óshlíð. Ekki er rætt um að stofna til nýrra fjárveitinga til mótvægisaðgerða vegna eflingar byggða í vanda heldur tilfærslu verkefna milli ára. Þingmenn Samfylkingarinnar komu saman í gærmorgun og hittast á ný á morgun. Er búist við að þá reki þingflokkurinn smiðshöggið á aðgerðaáætlunina fyrir sitt leyti. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hittist síðdegis á mánudag og fór ítarlega yfir stöðuna. Á þeim bæ hefur verið búið svo um hnúta að ekki er talin sérstök ástæða til að þingflokkurinn ræði málið aftur.
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Innlent Fleiri fréttir Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Sjá meira