Ákærðu í Baugsmáli sýknuð 26. janúar 2007 05:00 Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, og Jakob Möller hæstaréttarlögmaður skoða dóminn. MYND/GVA
Hæstiréttur sýknaði í gær alla fjóra sakborningana í því sem eftir stóð af upphaflegu Baugsmáli og staðfesti þar með sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Í þessum hluta málsins var Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, ákærður fyrir að hafa sett fram rangar eða villandi sérgreiningar í ársreikningum Baugs fyrir árin 1998 til 2001 með því að geta ekki lána til sín og tengdra aðila á viðskiptareikningum. Endurskoðendurnir Stefán Hilmar Hilmarsson og Anna Þórðar-dóttir voru ákærð fyrir að árita án fyrirvara ársreikningana, Stefán vegna áranna 1998 til 2001 en Anna vegna ársins 2001. Auk þess voru Jón Ásgeir og Kristín Jóhannesdóttir systir hans ákærð vegna innflutnings á tveimur bifreiðum. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að hugtakið lán verði að skilgreina þröngt, þannig að félag teljist hafa veitt lán þegar það hafi látið peningaupphæð eða ígildi hennar af hendi gegn því að upphæðin verði síðar endurgreidd. Sækjandi byggði mál sitt á því að neikvæð staða á viðskiptareikningum við áramót jafngilti láni. Hæstiréttur telur að fjölmargar hreyfingar á viðskiptareikningum beri það ekki með sér að um lán hafi verið að ræða og þar sem ákæruvaldið hafi ekki sundurgreint til hvers sé vísað beri að sýkna Jón Ásgeir af ákærum vegna ársreikninganna. Hæstiréttur telur þó mestu skipta að sakborningar hafi ekki verið spurðir nánar út í einstakar færslur á viðskiptareikningunum og málið ekki flutt með einstakar færslur í huga í héraðsdómi. Þar með hafi ákærðu ekki gefist kostur á að verjast ákærunum fyrir dómi og koma að eigin skýringum. Því sé óhjákvæmilegt að sýkna í þeim ákæruliðum sem snúi að ársreikningum. Jón Ásgeir var einnig ákærður fyrir að koma sér undan því að greiða rúmlega 480 þúsund krónur í aðflutningsgjöld vegna innflutnings á Grand Cherokee-bifreið árið 1999. Hæstiréttur taldi að ekki væri hægt að útiloka að mistök starfsmanna hefðu orsakað að ranglega hefði verið staðið að innflutningnum og því bæri að sýkna Jón Ásgeir. Kristín Jóhannesdóttir, systir Jóns Ásgeirs, var ákærð fyrir að hafa komið sér undan því að greiða tæplega 612 þúsund krónur vegna innflutnings á bifreið. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að ósamræmi hafi verið í frásögn vitnanna Jóns Geralds Sullenberger og bandaríska bílasalans Ivan G. Motta um innflutninginn, auk þess sem ekki sé ljóst hvaða verð hafi að endingu verið greitt fyrir bílinn. Því verði að fallast á þá niðurstöðu héraðsdóms að sýkna Kristínu af kröfum ákæruvaldsins.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Sjá meira