Íslenskur tvífari DiCaprio fékk frítt út að borða í Króatíu 12. mars 2007 08:00 Ágúst Sverrir þykir sláandi líkur Leonardo DiCaprio og eru það þá helst erlendir ferðamenn sem ruglast á honum og leikaranum.fréttablaðið/Anton Brink
Varla hefur það farið framhjá nokkrum lesanda Fréttablaðsins að hjartaknúsarinn sjálfur Leonardo DiCaprio var á landinu yfir helgina fyrir myndatöku Vanity Fair. Ef í harðbakkann hefði slegið og Leonardo forfalllast af einhverjum sökum þyrfti glanstímaritið ekki að leita langt yfir skammt. Því Leonardo á sannkallaðan tvífara hér á landi. Sá heitir Ágúst Sverir Daníelsson, 24 ára nemi í nuddi og verðandi faðir að fyrsta barni sínu ásamt unnustu sinni, Evu Guðrúnu, tannlæknanema í Háskóla Íslands. Þegar Fréttablaðið náði í skottið á honum var Ágúst í vinnu sinni en keyrir út þvott til hótela og veitingahúsa. Því skyldi engin útiloka að félagarnir rækjust á hvorn annan. „Ég hafði nú reyndar ekki frétt af þessu, að hann væri að koma," svarar Ágúst, aðspurður hvort hann hefði haft veður af komu tvífara síns. Ágúst segist aðallega hafa heyrt af þessari samlíkingu frá útlendingum sem komi hingað til lands. Hann hefur starfað sem leiðsögumaður í jöklaferðum og nýlega lenti hann í heldur skondinni lífsreynslu. „Það kom hingað rík fjölskylda frá Los Angeles sem ég var að aðstoða. Litla stelpan þeirra var alltaf að taka af mér myndir og undir rest ákvað ég að forvitnast af hverju hún væri af því. Svarið kom mér heldur betur á óvart; hún ætlaði að sýna vinkonum sínum í Bandaríkjunum hversu líkur leiðsögumaðurinn væri Leonardo DiCaprio," segir Ágúst og hefur augljóslega gaman af. Ætti að geta fengið frítt nudd hjá tvífara sínum. Og stundum hefur þetta sína kosti. Þegar þau skötuhjú fóru til Króatíu fyrir tæpum þremur árum kom meintur tvífari að góðum notum. „Við sátum á veitingastað nokkur saman og fengum allt frítt enda héldu þjónarnir að þarna væri sjálfur Leonardo mættur," segir Ágúst og skellir uppúr. Og eitt sumarið stóðst þrjátíu manna ferðahópur frá Japan ekki mátið og smellti myndum af Ágústi þar sem hann sat í sínum mestu makindum í heita potti Laugardalshallarinnar. Ástæðan: allir héldu þeir að Hollywood-stjarnan sæti þarna og spókaði sig meðal borgarbúa. Ágúst segist sjálfur ekki vera meðvitaður um hversu líkur hann sé Leonardo en bætir því að móðir vinkonu hans hafi fyrst komið auga á þetta og alltaf kallað hann Leó. Þetta nafn hefur reyndar fylgt honum síðan því útlendingar sem Ágúst leiðbeinir kalla hann öllu jafnan þessu nafni. „Mér þótti þetta fyrst pínulítið kjánalegt en núna hef ég bara gaman af og tek þátt í gríninu."
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Sjá meira