Erlent

Bandaríkin gera loftárásir á Sómalíu

Gæsla við forsetabústaðinn í Mógadisjú. Sprengingar heyrðust í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í gær, daginn eftir að Bandaríkjaher hóf loftárásir á skæruliða í sunnanverðu landinu.
Gæsla við forsetabústaðinn í Mógadisjú. Sprengingar heyrðust í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í gær, daginn eftir að Bandaríkjaher hóf loftárásir á skæruliða í sunnanverðu landinu. MYND/AP

Bandaríkjaher hefur síðan á mánudag að minnsta kosti þrisvar sinnum gert loftárásir á Sómalíu. Árásirnar hafa orðið fjölda manns að bana, þar á meðal tugum óbreyttra borgara að því er vitni fullyrða.

Árásunum er beint gegn skæruliðum íslamista sem voru á flótta eftir að her bráðabirgðastjórnar landsins hrakti þá frá höfuðborginni Mógadisjú með dyggri aðstoð frá Eþíópíuher. Bandaríkjamenn telja að meðal skæruliðanna hafi verið liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al-Kaída, þar á meðal menn sem grunaðir eru um að hafa staðið að hryðjuverkaárásum á sendiráð Bandaríkjanna í Kenía og Tansaníu árið 1998

Bandarísk herskip hafa verið út af ströndum Sómalíu undanfarið í þeim tilgangi að hafa uppi á hinum grunuðu, sem talið var að ætluðu að reyna að komast út úr landinu.

Abdullahi Yusuf, forseti bráðabirgðastjórnarinnar, sagði fréttamönnum í gær að Bandaríkin hafi „rétt til þess að varpa sprengjum á grunaða hryðjuverkamenn sem réðust á sendiráð þeirra í Kenía og Tansaníu“. Einnig sagði Hussein Aideed forsætisráðherra að Bandaríkin hefðu „fullan stuðning okkar til árásanna“.

Í höfuðborginni Mógadisjú sögðu þó aðrir að árásirnar myndu auka enn á andúð landsmanna gagnvart Bandaríkjunum. Íbúar Sómalíu eru að stórum meirihluta múslímar og hafa engan veginn verið sáttir við að herlið frá Eþíópíu hafi komið til að aðstoða bráðabirgðastjórnina, enda eru Eþíópíumenn flestir kristnir og hafa tvisvar átt í harðvítugu stríði við Sómalíu, síðast árið 1977.

Loftárásir Bandaríkjanna beindust meðal annars að eyjunni Badmado, sem er skammt frá bækistöðvum íslamísku skæruliðanna í Ras Kamboni sunnan til í landinu, ekki langt frá landamærum Kenía.

Bandaríkjamenn telja að menn tengdir Al Kaída hafi rekið þjálfunarbúðir í Ras Kamboni og þangað hafi liðsmenn Al Kaída komið. Þangað á líka Fazul Abdullah Mohammad, maðurinn sem talið er að hafi skipulagt árásirnar á sendiráðin 1998, að hafa flúið.

Starfhæf ríkisstjórn hefur varla starfað í Sómalíu frá árinu 1991, þótt þrettán sinnum hafi verið reynt að mynda stjórn þar síðustu sex árin. Bráðabirgðastjórnin sem nú er við völd var stofnuð árið 2004 með stuðningi Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×