Vilja drepa bangsakennarann Óli Tynes skrifar 1. desember 2007 13:26 Gillian Gibbons.
Þúsundir manna mótmæltu því á götum Kharthoum í gær að breska kennslukonan Gillian Gibbons skyldi ekki vera dæmd í nema fimmtán daga fangelsi fyrir að leyfa sjö ára börnum börnum í bekk sínum að skíra bangsa Múhameð. Mannfjöldinn vildi að hún yrði tekin af lífi. Margir mótmælendanna voru vopnaðir hnífum eða bareflum. Talið er að um 10 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum. Fjölmargir lögreglumenn fylgdust með en aðhöfðust ekkert. Það þykir benda til þess að stjórnvöld í Súdan hafi gefið samþykki sitt. "Þetta er hrokafull kona sem kom til landsins með laun í dollurum. Svo kennir hún börnum okkar að hata Múhameð spámann," sagði einn af leiðtogum múslima í samtali við Associated Press fréttastofuna. Dauðasynd Gibbons fellst í því að þegar einn nemenda hennar kom með bangsa í skólann spurði hún hvað hann ætti að heita. Börnin í bekknum vildu að hann héti Múhameð og á það féllst kennslukonan. Börnin fengu svo að taka bangsann með sér heim, eitt af öðru. Þau héldu fyrir hann dagbók sem þau lásu svo upp fyrir allan bekkinn. Bókin fékk titilinn Ég heiti Múhameð.
Erlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Sjá meira