Hollendingar takast á um ofskynjunarsveppi 8. ágúst 2007 22:40
Tekist er á um það á hollenska þinginu hvort banna eigi sölu ofskynjunarsveppa í landinu. Tíð slys af völdum þeirra hafa valdið því að nú eru flestir stjórnmálaflokkar á því að banna eigi sveppina. Í heimasíðu tímaritsins Time er fjallað um málið í dag og meðal annars vitnað til þess þegar 19 ára gamall Íslendingur stökk út um glugga á hótelherbergi sínu. Heilbrigðisráðherra landsins, Ab Klink, hefur hingað til ekki viljað banna sölu á ferskum ofskynjunarsveppum en þurrkaðir sveppir eru bannaðir í landinu. Hann segist nú vera að bíða niðurstöðu nýrrar rannsóknar þar sem skoðuð eru áhrif sveppana á fólk. Í framhaldi af því mun hann svo taka ákvörðun um hvort banna eigi sveppina. Í greininni í Time er minnst á nokkur slys sem rakin eru til ofneyslu sveppana og átt hafa sér stað í Amsterdam í síðasta mánuði. Franskur ferðamaður fannst í bíl sínum þar sem hann hafði drepið hundinn sinn. Þegar hann var yfirheyrður sagðist hann hafa viljað „frelsa hug" dýrsins. Þá er minnst á danskan mann sem ók í gegnum tjaldsvæði í vímu, franska stúlku sem stökk fram af brú og lét lífið og hinn 19 ára gamla Íslending sem stökk út um glugga á hóteli sínu í sveppavímu. Í frétt Fréttablaðsins af málinu á sínum tíma kemur fram að maðurinn hafi borðað þrettán ferska sveppi ásamt félaga sínum. Hann hafi fyllst ofsóknaræði, hulið eyru sín með höndunum, hlaupið að svölunum og stokkið fram af. Hann brotnaði illa á báðum fótum. Þó eru ekki allir Hollendingar einhuga um hvort kenna eigi sveppunum um þessi tíðu slys. Andstæðingar bannsins benda á að franski ferðamaðurinn hafi átt við geðtruflanir að stríða ótengdar sveppaátinu og að Daninn sem ók í gegnum tjaldsvæðið hafi verið búinn að innbyrða mikið magn áfengis auk þess sem hann hafði reykt maríúana. Á eitt eru menn þó sáttir um, að sögn Time, en það er sú staðreynd að erlendir ferðamenn virðast eiga mun erfiðara með sveppina en innfæddir. Í Amsterdam koma útlendingar við sögu í 90 prósent þeirra útkalla sem sjúkraflutningamenn fara í og rakin eru til ofneyslu sveppa. „Flest vandamálin eru vegna ferðamanna sem koma hingað til þess að innbyrða eins mikið af eiturlyfjum og mögulegt er," segir Guy Boels, formaður samtaka sveppasölumanna í Hollandi. „Þeir sofa ekkert að ráði, drekka áfengi og reykja gras í miklu magni. Síðan taka þeir sveppina í ofanálag." segir formaðurinn.
Mest lesið Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Innlent Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show Erlent Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Innlent Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Innlent Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Sjá meira