Gerum menntamál að kosningamáli 20. apríl 2007 05:00 Alþingiskosningar nálgast og þær virðast ætla að verða mjög spennandi. Ákveðnir málaflokkar hafa fengið meiri athygli en aðrir, og má þar nefna umhverfismál og efnahagsmál. Það eru að sjálfsögðu mikilvægir málaflokkar en það er skoðun Stúdentaráðs Háskóla Íslands að menntamál hafi ekki fengið nægilega mikla athygli í aðdraganda kosninganna, þrátt fyrir að vera einhver mikilvægasti málaflokkurinn. Stúdentaráð hefur nú kynnt stefnuskrá sína og skorar á stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til Alþingis að taka stefnumál stúdenta upp í sínar stefnuskrár og gera menntamál þannig að kosningamáli. Stefnuskráin er einföld og markmiðið er að gera Ísland að þekkingarþjóðfélagi í fremstu röð. Stúdentaráð vill þess vegna að stjórnmálaflokkarnir leggi aukna áherslu á menntamál því þekking og rannsóknir eru lykilþættir í því að efla íslenskt samfélag og gera það samkeppnishæft á alþjóðagrundvelli. Aukin menntun á að vera forgangsverkefni hjá íslensku þjóðinni, því menntun er forsenda hagvaxtar og framfara og þar með betri lífskjara allra landsmanna. Stúdentaráð leggur áherslu á jafnrétti til náms og hafnar skólagjöldum á öllum stigum í opinberum háskólum því skólagjöld mismuna fólki og skerða jafnrétti til náms. Enginn vafi er á því að ef skólagjöld yrðu tekin upp myndu færri sækja sér háskólamenntun, sem aftur myndi lækka menntunarstig þjóðarinnar. Stúdentar myndu líka í mun minni mæli sækja í þær greinar sem ekki endilega gefa af sér háar tekjur að loknu námi og það gæti t.d. haft slæmar afleiðingar fyrir menningu okkar og þjóðararf. Lánasjóðsmál eru stúdentum einnig gríðarmikilvæg. Þau námslán sem stúdentum bjóðast í dag eru bæði lægri en lágmarkslaun og atvinnuleysisbætur og löngu er orðið ljóst að þau duga ekki fyrir framfærslu stúdenta. Námslánin verða að endurspegla raunverulega framfærsluþörf stúdenta og til þess að þau geri það þurfa þau að hækka umtalsvert. Stúdentaráð fagnar því að einhverjir stjórmálaflokkar hafi komið fram með hugmyndir um að hluti námslána breytist í styrk að námi loknu og skorar á aðra flokka að berjast einnig fyrir því á Alþingi. Þetta eru einungis nokkur af þeim stefnumálum sem Stúdentaráð leggur fram en meðal annarra má nefna að samkeppnisstaða háskóla hérlendis verði leiðrétt, að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði verði tryggt og að stúdentum verði gert kleift að leigja sér íbúð á viðráðanlegu verði. Stefnuskráin í heild verður birt á heimasíðunni loford.is og þar verða stefnumál stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til Alþingis borin saman við stefnu stúdenta. Höfundur er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Skoðun Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa 16. maí? Gunnar Pétur Haraldsson skrifar Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Sem tveggja barna móðir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvandinn er mannanna verk Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Breytum þessu! Jón Guðni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar