Sport

Valur lagði Fylki

Mynd/Stefán

Valsmenn unnu góðan sigur á Fylki í Laugardalshöllinni í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld 20-28, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-15. Hjalti Þór Pálmason skoraði 10 mörk fyrir Val og Mohamadi Loutoufi skoraði 6. Þá var Hlynur Jóhannesson í miklu stuði í marki Vals og varði 20 skot. Heimir Örn Árnason skoraði 9 mörk fyrir Fylki.

HK vann öruggan sigur á Þór fyrir norðan 35-28, FH lagði KA 30-28 á útivelli og ÍR og Afturelding skyldu jöfn í Austurbergi 28-28. Leik Selfoss og Víkings/Fjölnis er enn ólokið, en hann hófst klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×