Staðsetning álvers á Norðurlandi skýrist 1. mars 5. janúar 2006 19:33
Ákvörðun um hvar álver verður staðsett á Norðurlandi verður tekin fyrir 1. mars næstkomandi. Samtímis þarf Alcoa að svara því hvort það vilji taka að sér framkvæmdina eða gefa verkefnið frá sér. Hugmyndir gera ráð fyrir að álverið á Norðurlandi verði nokkru minna en það sem Alcoa er nú að reisa við Reyðarfjörð. Valið stendur á milli þriggja staða; Brimness í Skagafirði, Dysness í Eyjafirði og Bakka við Húsavík. Rannsókn á þessum þremur kostum, sem hófst síðastliðið sumar, er nú að ljúka og verða niðurstöður kynntar á íbúafundum á þessum svæðum síðar í þessum mánuði. Að staðarvalsrannsóknininni standa viðkomandi sveitarfélög, atvinnuþróunarfélög, ríkið og Alcoa en í henni er lagt mat á þætti eins samfélagsáhrif, hafnaraðstæður, jarðskjálfta- og hafíshættu og umhverfisaðstæður. Í samkomulagi sem aðilar gerðu með sér síðastliðið sumar er miðað við að þann 1. mars næstkomandi liggi fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt verði að taka ákvörðun um hvort og þá hvar skuli unnið frekar að undirbúningi að byggingu álvers. Alcoa þarf þá að svara því hvort það vilji standa að framkvæmdinni á Norðurlandi eða gefa verkefnið frá sér og segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa, ekkert benda til annars en að fyrirtæki verði þá tilbúið að gefa svar. Landsvirkjun hefur samtímis lagt mat á það hvaðan væri hægt að afla raforku til álvers norðanlands. Þar horfa menn til jarðgufuvirkjana, að sögn Bjarna Bjarnasonar hjá orkusviði Landsvirkjunar. Með stækkun Kröfluvirkjunar, og virkjana í Bjarnarflagi, Gjástykki og Þeistareykjum telur Landsvirkjun unnt að afla nægilegrar orku fyrir allt að 230 þúsund tonna álver. Hugmynd Landsvirkjunar er að virkja í tveimur áföngum og yrði sá fyrri tilbúinn árið 2012 en sá síðari árið 2015. Þetta þýðir að smíði álvers hefst vart fyrr en árið 2010.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fleiri fréttir Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Sjá meira