Innlent

Stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja líftíma NMT-farsímakerfisins um tvö ár.

Forsvarsmenn Símans tilkynntu Póst- og fjarskiptastofnun fyrir nokkru að þeir hygðust leggja niður langdræga NMT farsímakerfið um næstu áramót. Nú hefur stjórn Póst- og fjarskiptastofnunar hins vegar ákveðið að nýta sér heimild sína í leyfi Símans til reksturs NMT-farsímakerfis til að framlengja líftíma kerfisins um tvö ár.Það er tvenns konar tækni sem kemur til greina sem arftaki NMT-farsímakerfisins en bæði verða send út á 450 Megaherza kerfinu hefur verið notað fyrir rekstur NMT-farsímakerfisins. Annar valkosturinn er GSM 450. Helstu kostir þess kerfis eru að það er tiltölulega ódýrt í uppbyggingu og hægt er að nota fyrirliggjandi búnað. Hinn kosturinn er CDMA. Það er öflugra en GSM 450 og í talsverðri sókn erlendis meðan útbreiðsla GSM 450 hefur verið takmörkuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×