Ekkert lát á árásum Ísraela á Gazaströndina 30. júní 2006 20:30
Ekkert lát er á árásum Ísraela á Gazaströndina en í morgun lögðu þeir innanríkisráðuneyti Palestínu í rúst, svo og skrifstofur Fatah-hreyfingarinnar. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, segir árásirnar torvelda frelsun ísraelska gíslsins sem er í haldi skæruliða. Sambúð Ísraela og Palestínumanna virðist hafa náð nýjum lægðum eftir að skæruliðar tengdir Hamas-samtökunum tóku ísraelskan hermann í gíslingu á dögunum. Ísraelsher hóf stórfelldar árásir á Gazaströndina í gær og í morgun tók hann upp þráðinn þar sem frá var horfið. Palestínska innanríkisráðuneytið í Gazaborg brann til kaldra kola í morgun þegar sprengjur Ísraela höfnuðu á því og skömmu síðar mættu höfuðstöðvar Fatah-hreyfingar Abbas forseta svipuðum örlögum. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar og einn leiðtoga Hamas, ávarpaði þjóð sína í dag í fyrsta sinn frá því að árásarhrinan hófst. Hann sagði augljóst að Ísraelar ætluðu að nota gíslatökumálið sem yfirskin til að steypa Hamas-stjórninni af stóli. Allt væri hins vegar gert til að frelsa hermanninn. Mubarak Egyptalandsforseti sagði í blaðaviðtali í dag að Hamas hefði fallist á að láta gíslinn lausan með skilyrðum þó. Ekki fylgdi sögunni hver þau voru.
Erlent Fréttir Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira