Rukkuðu Impregilo meira en aðra 11. ágúst 2006 17:11
Heilbrigðiseftirlit Austurlands braut jafnræðisreglu stjórnsýslulaga í viðskiptum sínum við verktakafyrirtækið Impregilo. Eftirlitið breytti gjaldskrá sinni á þann veg að Impregilo þurfti að borga 30 prósent umfram aðra viðskiptavini. Það var í janúar 2004 sem Heilbrigðiseftilit Austurlands breytti gjaldskrá sinni á þann veg að rukkað var þrjátíu prósent meira fyrir eftirlit tengdu stóriðju og virkjanaframkvæmdum en fyrir hefðbundið eftirlit. Var gjaldskrárbreytingin gerð þegar umfang starfsemi Impregilo var orðin ljós. Í janúar á þessu ári kærði Impregilo gjaldskrárbreytinguna til umhverfisráðuneytisins. Þórarinn V. Þórarinsson, lögmaður Impregilo, segir úrskurðinn sigur fyrir Impregilo. Á þremur árum nemi viðskipti Impregilo við heilbrigðiseftirlitið milljónum. Hann segir ekki algengt að gjaldskrárákvæði opinberra aðila séu ógilt á þeim grundvelli að þau feli í sér mismunun. Mismununin hafi hins vegar verið augljós þar sem sömu starfsmenn heilbrigðiseftrlitsins hafa sinnt eftirliti með stóriðjuframvkæmdum Impregilo og hinu hefðbundna eftirliti. Í niðurstöðu úrskurðarnefndar Umhverfisráðuneytisins kemur fram að Heilbrigðiseftirlit Austurlands hafi tekið upp sérákvæðið vegna hugsanlegrar aukningar leyfisveitinga á svæðinu. Líkamsræktarstöðvar og kvikmyndahús gætu risið og því hafi verið nauðsynlegt að taka upp aukið gjald með auknu flæði starfsleyfisumsókna. Þrátt fyrir að nefndin hafi komist að því að Heilbrigðiseftirlitið hafi brotið jafnræðisreglu stjórnsýslulaga er kröfum Imrpegilo um endurgreiðslu þeirrar upphæðar sem Heilbrigðiseftirlitið rukkaði Impregilo aukalega um vísað frá.
Fréttir Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira