Tennisleikarinn Amelie Mauresmo sigraði á Parísarmótinu í tennis sem lauk í dag þegar hún lagði Mary Pierce auðveldlega 6-1 og 7-6 í úrslitaleik í dag. Þetta var annar sigur hennar á stuttum tíma, en hún sigraði sem kunnugt er á opna ástralska meistaramótinu fyrir skömmu.
Mauresmo sigraði í París
