Ótímabundið hlé á kjarnorkuviðræðum 22. desember 2006 08:46 Kim Kye Gwan, varautanríkisráðherra Norður-Kóreu, gengur að hljóðnemunum á blaðamannafundi. Sergey Razov, formaður sendinefndar Rússa, hvetur hann áfram. MYND/AP
Vikulöngum viðræðum sex landa um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna lauk í dag án nokkurrar niðurstöðu að hægt sé að tala um. Að svo stöddu verður tekið hlé í viðræðunum og er engin tímasetning á því hvenær þær munu halda áfram. Þetta hefur Yonhap fréttastofan suðurkóreska eftir heimildarmanni sem tekið hefur þátt í viðræðunum. Samninganefndirnar sitja nú við og reyna að komast að niðurstöðu um það hvenær hægt verði að taka viðræður upp aftur, að sögn þessa sama heimildarmanns. Viðræðurnar sóttu, auk Norður- og Suður-Kóreumanna, Bandaríkjamenn, Kínverjar, Japanar og Rússar. Þessi niðurstaða kemur hins vegar ekki á óvart í ljósi þess að ráðamenn í Pyongyang höfðu dregið skýrar línur áður en viðræðurnar hófust og var ljóst að Norður-Kóreumenn settu markið hátt í samningaviðræðunum. Þeir kröfðust meðal annars að allar viðskiptahindranir yrðu dregnar til baka og að þeir myndu fá kjarnakljúf sem gengi fyrir venjulegu vatni í stað þungs vatns, til raforkuframleiðslu. Mikill þrýstingur hefur verið á Bush forseta frá harðlínumönnum í Washington að láta hvergi undan kröfum Norður-Kóreumanna, þó aðrir hvetji til undanlátssemi, til þess að ná samkomulagi.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Innlent Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Erlent Fleiri fréttir Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Sjá meira