Knattspyrnusamband Íslands hefur nú boðið 300 aukamiða til sölu á leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM sem hefst klukkan 18:05 í kvöld og þar er á ferðinni kjörið tækifæri fyrir þá sem enn hafa ekki náð að tryggja sér miða á þennan stórleik. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
Hafin er sala á um 300 miðum á landsleik Íslands og Danmerkur í kvöld
þar sem sætum hefur verið komið fyrir í efstu raðir í tveimur hólfum og
svæði danskra áhorfenda minnkað. Leikurinn hefst kl. 18:05 og eru áhorfendur hvattir til þess að mæta tímanlega og forðast þannig biðraðir við inngönguhliðin.