Albert Jónsson til Washington 15. júní 2006 07:30 Albert Jónsson Verður sendiherra í Washington frá og með 1. nóvember. MYND/valli
Albert Jónsson verður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá 1. nóvember. Um þá ráðstöfun og breytingar á högum tólf annarra sendiherra var tilkynnt í gær. Var það eitt af síðustu embættisverkum Geirs Haarde sem utanríkisráðherra. Albert starfaði lengi í forsætisráðuneytinu og var þar náinn samverkamaður Davíðs Oddssonar í öryggis- og varnarmálum. Fylgdi hann Davíð í utanríkisráðuneytið, þar sem hann starfar þar til hann heldur utan. Helgi Ágústsson, sem verið hefur sendiherra í Washington, kemur til starfa í utanríkisráðuneytinu. Í ágúst verður Grétar Már Sigurðsson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu, sendiherra í Peking, höfuðborg Kína, og við starfi hans tekur Berglind Ásgeirsdóttir sem verið hefur aðstoðarframkvæmdastjóri OECD. Eiður Guðnason, sendiherra í Kína, mun veita skrifstofu upplýsinga- og menningarmála forstöðu og tekur Elín Flygenring, sem gegnt hefur því starfi við embætti prótókollstjóra. Stefán Lárus Stefánsson prótókollstjóri verður sendiherra gagnvart Evrópuráðinu í Strassborg. Hörður H. Bjarnason, sendiherra í Strassborg, kemur til starfa á alþjóðaskrifstofu. Benedikt Ásgeirsson, sendiherra í Pretoríu í Suður-Afríku, tekur við starfi sendiherra í Rússlandi í ágúst en við starfi hans tekur Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Benedikt Jónsson flytur frá Moskvu til starfa á viðskiptaskrifstofu. Þorsteinn Ingólfsson, sem verið hefur fulltrúi Norðurlanda í stjórn Alþjóðabankans, kemur til starfa í ráðuneytinu en kjörtímabili hans í bankanum lýkur 1. júlí. Þá hefur Lilja Viðarsdóttir verið skipuð aðstoðarframkvæmdastjóri EFTA í Brussel frá 1. september.
Innlent Mest lesið „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Innlent Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Erlent Trump segir „alvöru hungursneyð“ ríkja á Gasa Erlent Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Innlent Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Innlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Fleiri fréttir Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Sjá meira