Húsaleiga hefur margfaldast 24. janúar 2005 00:01
Hátt í 100 íbúðir eru í byggingu eða í farvatninu á Egilsstöðum, þar af er 21 íbúðar blokk risin og hefur verið flutt inn í tæpan helming íbúðanna. Verið er að byggja 23 íbúða blokk til viðbótar auk einbýlishúsa á vegum Malarvinnslunnar. Afgangurinn er á vegum annarra fyrirtækja. Sigurþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Malarvinnslunnar, segir að Íbúðalánasjóður hafi veitt lán á sérkjörum til þeirra sem hafi viljað byggja leiguíbúðir og þá hafi margir farið af stað. Malarvinnslan hafi verið með lóð undir blokk og því hafið framkvæmdir. Fyrsta íbúðin hafi verið afhent í haust og nú hafi verið flutt inn í tæpan helming íbúðanna, hinar séu tilbúnar en óseldar. "Maður hefði ímyndað sér að fleiri íbúðir myndu seljast en ég trúi því að það gerist með hækkandi sól," segir hann. Fyrirhuguð er bygging verslunar- og þjónustuhúsnæðis á Egilsstöðum þó að ekki sé búið að fastsetja hvenær framkvæmdir hefjast. Til viðbótar mun rísa tveggja hæða verslunarhúsnæði, 250 fermetrar að grunnfleti. Tískuverslunin Sentrum verður þar á götuhæðinni og skrifstofur á efri hæðinni. Systurnar Þuríður og Margrét Halldórsdætur reka tískuverslunina Sentrum í Miðvangi. Þær segja að rekstur verslunarinnar hafi gengið þar til húsaleiga hafi hækkað og margfaldast. Þær hafi því ákveðið að spila djarft og byggja nýtt tveggja hæða verslunarhúsnæði skammt frá Samkaupum. Framkvæmdir eru hafnar og stefna þær að því að opna í nýju húsnæði á þessu ári. "Við teljum það vænlegri kost en að leigja á markaðinum. Reksturinn hefur rétt náð að fljóta en nú er enginn grundvöllur fyrir því að leigja. Húsaleigan stendur litlum fyrirtækjum hér fyrir þrifum og margir hafa hætt, meðal annars út af húsnæðisskorti. Markaðurinn er enn ekki orðinn nógu stór til að sérverslun gangi hér," segja þær.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira