Búið að lagfæra girðingu 27. janúar 2005 00:01
Búið er lagfæra girðingu á lóð fyrirtækisins Ásgeirs Sigurðssonar við Síðumúla 35 að kröfu Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Fyrirtækið fullyrðir að umbúðir hættulegra efna sem voru á lóð fyrirtækisins í gær hafi verið tómar og á leið til áfyllingar hjá birgjum þann sama dag. Eins og fram kom í frétt Stöðvar 2 í gær gerði eftirlitsmaður Umhverfis- og heilbrigðisstofu athugasemd við það í júní í fyrra að engin girðing væri utan um hættuleg efni á lóðinni. Í gær var aftur gerð athugasemd við að girðingin væri ekki mannheld og farið fram á það yrði lagað. Páll Björnsson, einn eigenda fyrirtæksins, segir miður ef aðstæður hafi valdið óöryggi hjá einhverjum nágrönnum. Fyrirtækið hafi hins vegar 110 ára reynslu í meðferð hættulegra efna og myndi aldrei stofna umhverfinu í hættu. Í skýrslu eftirlitsmannsins frá því í gær segir að efnavörur í porti sem geti flokkast sem hættuleg efni eigi að fara inn á lager eða að vera á afgirtu svæði. Ekki sé hins vegar gerð athugasemd við eiturflokkaðar efnavörur. Þær hafi verið geymdar í læstum gámi á lóðinni. Þá skoðaði eftirlitsmaður umbúðir fyrir framan húsið og staðfesti að gashylki fyrir utan fyrirtækið sem innihéldu áður ammoníak væru tóm. Í dag var búið að hengja miða á girðinguna um að allar umbúðir innan hennar væru tómar. Örn Sigurðsson hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu staðfesti svo í dag að fyrirtækið hefði brugðist hratt og vel við og hefði lagfært girðingu eftir heimsókn eftirlitsmannsins í gær og því væri umhverfið komið í viðunandi horf. Eldvarnareftirlitið hefur haft afskipti af fyrirtækinu varðandi brunavarnir. Bjarni Kjartansson segir að brunavarnakerfi hússins við Síðumúla 35 sé orðið mjög gott eftir að gerðar hafi verið úrbætur að kröfu eftirlitsins fyrir tveimur árum. Hluti af gámum undir eiturefni hafi hins vegar verið settir undir bert loft. Eiturefni á lóð séu hins vegar ekki á forræði eftirlitsins alla jafna nema líklegt þyki að eldur nái að læsa sig í þau.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira