Bíða á hóteli eftir íbúðinni sinni 27. janúar 2005 00:01
Afhending á íbúðum í 101 Skuggahverfi hefur dregist verulega og hafa um 15 manns "lent illa í því", eins og Einar Halldórsson, framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Stoða, orðar það. Þetta fólk hefur búið á hótelum eða í leiguíbúðum í nokkrar vikur eða mánuði. Stærsti hópurinn, um tíu manns, hefur búið í leiguíbúðum á Hótel Fróni, sumir jafnvel frá því fyrir jól. "Við höfum reynt að axla þessa ábyrgð þó að ekki hafi verið við okkur að sakast að afhending hafi dregist svona og sjá til þess að fólkið lenti ekki á vergangi. Þetta er mjög bagalegt og hefur komið illa við marga en sumt af þessu fólki ætlaði að innrétta sína íbúð sjálft og þá ræður það ferðinni. Það eru þá íbúðir sem við höfum afhent en eru í innréttingum á vegum þessa fólks," segir hann. "Það er erfitt að negla niður tíma hvenær fólkið hefði átt að geta flutt inn því að það fer svolítið eftir því hvað það tekur langan tíma að innrétta íbúðina hjá því. Við innréttum þær íbúðir sem átti að skila tilbúnum án gólfefna og síðan höfum við tekið að okkur með viðbótarsamningi að innrétta hluta af hinum íbúðunum og þá eru mismunandi afhendingartímar á því," segir Einar. Gísli Úlfarsson, sölustjóri á Hótel Fróni, segir að sumir hafi búið þar stutt og aðrir lengur en að tveir til þrír fái afhent á næstu dögum og svo fari þetta smám saman að leysast. Ýmsar ástæður hafa valdið töfinni en Einar segir að ekki hafi náðst þau afköst í verkinu sem miðað hafi verið við. Guðrún Árnadóttir, fasteignasali á Húsakaupum, segir að kaupendur hafi í töluverðum mæli samið við Stoðir um breytingar á íbúðunum og það hafi meðal annars tafið afhendingu. Fjölbýlishúsin í 101 Skuggahverfi eru byggð í þremur áföngum og er fyrsti áfangi risinn. Afhending íbúðanna er að hefjast en síðustu íbúðirnar verða afhentar í júní.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira