Tenórarnir tveir að koma 22. febrúar 2005 00:01
Unnendur klassískrar tónlistar eiga von á nokkrum góðum dögum í mars. Tveir af þremur frægustu tenórsöngvurum heims halda tónleika í Reykjavík með átta daga millibili. Einhvern tíma hefði þurft góðan lygara til að sannfæra fólk um að þeir Carreras og Domingo héldu tónleika á Íslandi, svo að segja samtímis, en nú þarf ekki lygina til - þetta er beinhörð staðreynd. Yfirbragð hljómleikanna tveggja verður með ólíkum hætti. Carreras kemur fram með strengjakvartett og píanóleikara í Háskólabíói þar sem níu hundruð sæti eru í salnum. Domingo syngur hins vegar með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Óperukórnum og sópransöngkonunni Ana Maria Martinez í Egilshöll þar sem fimm þúsund sæti eru í boði. Fyrirtæki Einars Bárðarsonar, Concert, stendur að hljómleikum Carreras en Þóra Guðmundsdóttir og Þorsteinn Kragh flytja Domingo inn. Einar og Þorsteinn hafa staðið að fjölda viðburða á tónlistarsviðinu undanfarin ár en Þóra er einkum kunn af flugrekstri enda kennd við Atlanta. Einar hefur meðal annars staðið að hljómleikum Kiri Te Kanawa, Van Morrison, Diana Krall og Deep Purple en hann tók sín fyrstu skref í umboðsmennsku með hljómsveitinni Skítamóral. Meðal sveita og listamanna sem Þorsteinn hefur flutt til landsins eru Blur, Pulp og Ash en hann byrjaði í bransanum fyrir sextán árum þegar hann gerðist umboðsmaður Bubba Morthens. Fyrir nokkrum árum stóð Þorsteinn að hljómleikum Carreras í Laugardalshöll en etur nú kappi við hann með Domingo að vopni. Einar Bárðarson segir miðasölu og undirbúning tónleikanna í Háskólabíói ganga vel. Hún hófst í haust en um eitt hundrað miðar eru eftir. Einar leggur mikið upp úr miklu návígi Carreras og áheyrenda í Háskólabíói enda salurinn lítill miðað við það sem gengur og gerist í þessum heimi. "Þetta verður eins og að vera í partíi með honum," segir hann. Andrúmsloftið í Egilshöll verður annað enda húsið eitt það stærsta á landinu. Því verður þó skipt í tvö hólf og aðeins selt í fimm þúsund sæti þó pláss sé fyrir þrefalt fleiri gesti. Veitingasala verður í hinum helmingi hússins og verður stórum hringbar komið fyrir á gólfinu. Þorsteinn segir allt ganga vel og finnur fyrir miklum áhuga. Hann segir fyrirtæki dugleg við að kaupa miða fyrir viðskiptavini og starfsfólk og veit til þess að sumir hafi keypt allt upp í eitt hundrað miða. Á báðum tónleikum er sölunum skipt upp í svæði og er verðlag með misjöfnum hætti, alllt eftir nálægð við sviðið. Miðar á Carreras í Háskólabíói kosta 14.900, 19.900, 24.900 og 29.900 en á Domingo í Egilshöll fást miðar á 9.900, 14.900 og 30.000 krónur. Bæði Einar og Þorsteinn segjast hafa spurnir af fólki sem ætli á báða tónleikana og sjálfir eru þeir áhugasamir um tónleika hvors annars. "Ég væri til í að sjá Carreras," segir Þorsteinn. "Ég myndi fara á Domingo ef ég væri á landinu," segir Einar. Placido Domingo.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira