Erlent

Reyna að draga skipið lengra út

Björgunarmenn í Noregi reyna í kapp við tímann að draga olíuflutningaskip, sem stendur í björtu báli, lengra út á sjó svo að hægt verði að slökkva eldinn. Óttast er meiri háttar umhverfisslys ef 800 tonn af olíu, sem eru í skipinu, leka í sjóinn. Eldurinn virðist hafa kviknað í vélarrúmi skipsins seint í gærkvöld. Töldu skipverjar að þeir hefðu ráðið niðurlögum hans en nokkrum klukkustundum síðar blossaði hann upp aftur. Snemma í morgun var eldhafið orðið mikið, brúin í björtu báli og skipið rak í átt að landi. Svo virðist það hafa strandað rétt utan við Kristianssand í suðurhluta Noregs. Þeir voru þreyttir og slæptir skipverjarnir sem björgunarþyrlum tókst í nokkrum ferðum að ná úr brennandi skipinu og voru ellefu fluttir á sjúkrahús. Meiðsli þeirra eru minni háttar. Skipið, sem nefnist Fjord Champion, er 30 þúsund tonn og 170 metra langt. Samtals eru rúmlega 800 tonn af olíu um borð. Takist ekki að koma böndum á eldinn er óttast að olían leki út í hafið. Engin merki sjást enn um olíuleka. Mikill viðbúnaður er vegna mengunarvarna og til stendur að reyna að dæla olíunni úr skipinu. Nú er verið að draga skipið á haf út þar sem gerðar verða fleiri tilraunir til að slökkva eldinn. Fyrst þá verður hægt að huga að því að dæla olíunni frá borði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×