Innlent

Bílaapótek opnað í Kópavogi

Fyrsta bílaapótekið á Norðurlöndum var opnað í Kópavogi í morgun. Það er Lyfjaval sem á nýja bílaapótekið sem er við Hæðasmára. Afgreitt er um lúgu og hægt er að láta símsenda lyfseðla í apótekið, panta afgreiðslu á fjölnota lyfseðlum sem geymdir eru í bílaapótekinu eða með því að leggja þá inn að morgni og sækja lyfin síðar. Þrátt fyrir að bílaapótekið sé það fyrsta sinnar tegundar á Norðurlöndum er komin þó nokkur reynsla á slíkan rekstur í Bandaríkjunum þar sem lúguapótekum hefur fjölgað síðustu ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×