Sport

Real tapaði heima

David Beckham lét reka sig útaf fyrir fíflagang
NordicPhotos/GettyImages

Real Madrid tapaði 2-1 á heimavelli í æsilegum kvöldleik í spænska boltanum nú fyrir stundu. Zinedine Zidane misnotaði vítaspyrnu í leiknum og þeir David Beckham og Thomas Gravesen voru reknir af leikvelli.

Baraja kom gestunum yfir á 22. mínútu, eftir að franski landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane hafði misnotað vítaspyrnu í upphafi leiks. Gulldrengurinn Raul jafnaði metin á 37. mínútu leiksins, en Villa skoraði svo það sem reyndist sigurmark Valencia úr vítaspyrnu aðeins tveimur mínútum síðar.

Undir lok leiksins sauð svo uppúr hjá leikmönnum Madrídarliðsins og þeir Thomas Gravesen og David Beckham fengu báðir að fjúka útaf með rauð spjöld. Beckham fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum þegar hann klappaði kaldhæðnislega fyrir dómara leiksins eftir að hafa fengið áminningu og fetaði þar beint í fótspor félaga síns hjá enska landsliðinu, Wayne Rooney.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×