Sport

Gunnar Heiðar markakóngur

Gunnar Heiðar náði frábærum árangri með Halmstad á sínu fyrsta tímabili með liðinu
Gunnar Heiðar náði frábærum árangri með Halmstad á sínu fyrsta tímabili með liðinu AFP
Framherjinn knái hjá Halmstad, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, varð í dag markakóngur í sænsku úrvalsdeildinni þegar síðustu umferðinni lauk með heilli umferð. Halmstad tapaði lokaleiknum 2-0 fyrir Kalmar, en Gunnar varð engu að síður markahæstur í deildinni með 16 mörk.

Halmstad hafnaði í tíunda sæti deildarinnar, en Djurgarden, sem þegar hafði tryggt sér meistaratitilinn, rótburstaði Elfsborg 8-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×