Fjölamorðanna í Srebrenica minnst 10. júlí 2005 00:01
Þúsundir múslíma í Bosníu röktu í dag slóð þeirra átta þúsund karla og drengja sem voru drepnir í bænum Srebrenica. Tíu árum eftir voðaverkin er biturð og reiði enn áberandi í Bosníu og íbúar þar segjast óttast að átök geti brotist út hvenær sem er. Íbúar bæjarins minnast fórnarlamba fjöldamorðsins þann ellefta júlí 1995. Átta þúsund eiginmenn, feður, bræður og synir voru drepnir þann dag, þegar hersveitir Bosníu-Serba gerðu áhlaup á bæinn, sem var verndarsvæði sveita Sameinuðu þjóðanna. Eftirlifendur sinna gröfunum þrettán hundruð sem fjölgar sífellt, eftir því sem fleiri fjölgagrafir finnast. Sjálfur bærinn er enn að hluta í rúst, minnismerki þess sem gerðist á hverju horni og það reynist eftirlifendum erfitt að gleyma og fyrirgefa. Omar Osmic, sonur eins fórnarlambsins, segir erfitt að útskýra og bendir á að þeir hafi veri manneskjur en ekki dýr. Eftirlifendunum svíður ekki síst að hershöfðingin sem stýrði þjóðarmorðinu, Ratko Mladic, er enn á lausu og fær eftirlaun í Serbíu. Forseti Bosníu-Serba, Radovan Karadzic, hefur ekki heldur náðst. Biturð og reiði einkenna ekki einungis Srebrenica; í höfuðborginni Sarajevo er ástandið litlu betra. Þegar flogið er yfir borgina vekja skærrauð húsþök athygli. Þau eru öll ný, því þegar Serbar vörpuðu sprengjum á borgina lentu þær á þökunum og eyðilögðu. Húsin í Sarajevo hafa flest verið gerð upp. Norsk hjálparsamtök eyddu tíma og fé í að mála mörg þeirra í skærum og glaðlegum litum í von um að það hjálpaði til við að eyða minningunum um þessi voðaverk. En skotgötin á öðrum byggingum eru ennþá ofarlega í huga íbúa borgarinnar og þeir geta ekki gleymt leyniskyttunum sem skutu á allt kvikt á götum borgarinnar. Minnismerkin um ódæðisverkin í Srebrenica eru ekki síst fjöldagrafirnar, (LUM) en ein slík, með líkamsleifum allt að hundrað múslíma, fannst í bænum Budak, skammt frá Srebrenica nýlega. Talið er að serbneskir hermenn hafi drepið þá sem þar voru grafnir þegar þeir réðust á bæinn fyrir rétt um tíu árum. Alls hafa um sextíu fjöldagrafir fundist í námunda við Srebrenica.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira