1. maí ekki haldinn 1. maí? 5. mars 2005 00:01
Fyrsta maí kröfugangan gæti heyrt sögunni til. Hún er barn síns tíma og stendur ekki undir væntingum að mati miðstjórnar Rafiðnaðarsambands Íslands. Verði stjórninni að vilja sínum gæti það einnig þýtt að framvegis verði haldið upp á 1. maí þann 3. eða jafnvel 7. maí. Miðstjórn Rafiðnaðarsambandsins segir að lítil þátttaka í kröfugöngunni ásamt athöfnum margs konar öfgahópa hafi eyðilagt þá áferð sem var á þessum baráttudegi verkalýðsins. Hún telur að núverandi fyrirkomulag sé verkalýðshreyfingunni ekki til framdráttar. Hætta sé á að hópurinn tvístrist og einhver félög taki höndum saman um að sniðganga gönguna sem væri miður á þessum degi og vatn á myllu þeirra sem eru andstæðir verkalýðshreyfingunni. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að miðstjórnin hafi líka tekið eftir því að mörg stéttarfélög leigi sali undir kaffiboð og þeir salir séu fullir. Þar komi fólk saman og sé með fjölskyldunni á meðan verkalýðsforingjarnir standi nánast aleinir í fánaborg niðri á Lækjartorgi og skiptist á að flytja ræðu hvor yfir öðrum. Fáir hlusti á þá að undanskildum örfáum öfgahópum. Mælst er til þess að stéttarfélögin í Reykjavík sameinist um að halda víðtæka fjölskylduhátíð í Laugardalnum þar sem boðið sé upp á vönduð skemmtiatriði og aðeins eitt ávarp. Guðmundur er alls ekki viss um að sjónarsviptir yrði af hátíðahöldunum í miðbænum. Hann segir þau ekki eins vinsæl í dag og fyrir nokkrum árum. Ræður verkalýðsforingjanna 1. maí séu mjög sérstakar þar sem menn tvinni saman heilur raðirnar af yfirlýsingum. Fólk vilji ekki hlusta á þær og þá hljóti að þurfa að skipta um gír. En svo gæti farið að 1. maí verði alls ekki haldinn hátíðlegur 1. maí. Miðstjórnin leggur til að verkalýðshreyfingin sameinist ásamt Samtökum atvinnulífsins um að tekið verði upp það fyrirkomulag að ætíð verði frí fyrsta föstudag í maí í stað hins hefðbundan frídags 1. maí. Þetta kallar á fleiri frídaga á virkum degi en verið hefur hingað til en það telur miðstjórnin að leysa megi með því að líta til sumardagsins fyrsta og nýrra ákvæða í kjarasamningum um tilfærslu svokallaðra fimmtudagsfrídaga. Kostnaður fyrirtækja yrði svipaður og nú, hagræði þeirra augljóst og launamenn næðu betri og fjölskylduvænni fríum að þeirra mati. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir ekkert því til fyrirstöðu að þessi háttur verði hafður á í ár. Nú sé verið að panta lúðrasveitina og hátalarakerfið fyrir hátíðahöldin og lítið mál að flytja hvort tveggja í Laugardalinn. Ef sambandinu verður að ósk sinni verður fyrsti maí haldinn hátíðlegur föstudaginn 6. maí í ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Innlent Fleiri fréttir „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Sjá meira