Erlent

Gripnir vegna gíslatöku í Beslan

Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við gíslatökuna í Beslan í Rússlandi í fyrra, þar sem meira en 330 manns létust. Það var í september síðastliðnum sem 330 börn og fullorðnir létu lífið þegar hryðjuverkamenn tóku um þúsund manns í gíslingu í skóla í bænum Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Yfirvöld sögðu þá að einn gíslatökumaður hefði verið handtekinn en 31 hefði farist. Fjöldamörgum spurningum varðandi atburðina í Beslan er enn ósvarað. Rannsóknarnefnd skilaði frumskýrslu í síðustu viku þar sem fram kemur að þungavopnum var beitt gegn hryðjuverkamönnunum og þeirri spurningu varpað fram hvort að lífi fórnarlambanna hafi þannig verið stefnt í óþarfa hættu. Að auki er ennþá óljóst hversu margir hryðjuverkamennirnir voru og hvort einhver þeirra komst undan. Rússneski ríkissaksóknarinn segir að fjórmenningarnir sem handteknir voru í gær séu grunaðir um að hafa undirbúið bæði gíslatökuna í Beslan og aðrar árásir á svæðinu. Hann sagði að fimm aðrir grunaðir hefðu látist þegar þeir sýndu mótþróa viði handtöku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×