Lægstu laun verða 200 þúsund 1. mars 2005 00:01
Frá og með 1. maí næstkomandi hækka lægstu laun aðildarfélaga Bandalags háskólamanna upp í 200 þúsund krónur, samkvæmt nýjum kjarasamningi sem gerður hefur verið við ríkið. 24 af 25 aðildarfélögum BHM sömdu við ríkið en Félag náttúrufræðinga taldi undirbúningstímann of skamman. Nýr kjarasamningur ríkisins og aðildarfélaga Bandalags háskólamanna var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samningurinn gildir frá 1. febrúar síðastliðnum til 30. apríl árið 2008. Félag náttúrufræðinga ákvað að vera ekki í samfloti við önnur aðildarfélög BHM þar sem það telur nauðsynlegt að fá lengri tíma til að undirbúa sinn samning. Áfangahækkanir sem samið var um eru þær sömu og samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði en ríkið metur heildarkostnaðaraukninguna á 19,83 prósent. Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, segir að meginmarkmiðið hafi verið að hækka lægstu laun félagsmanna. Þeir treysti því að nú þegar ein launatafla og einn stofnanasamningur taki gildi fyrir alla gangi betur að útrýma þeim launamun kynjanna sem því miður hafi viðhaldist bæði hjá ríkinu og á almennum markaði. Aðspurð hversu mikið launin hækka segir Halldóra það misjafnt eftir einstaklingum og félögum. Það eigi að vera tryggt að hvert félag fái um 15 prósenta launahækkun með samningnum en fyrir einstaklinga geti það verið aðeins minna eða töluvert meira. Það fari eftir því hvar fólki sé raðað innan síns félags og hvernig félagið standi. Halldóra segir að frá og með 1. maí verði lægstu laun 200 þúsund í nýrri töflu og síðan eigi eftir að verða hækkanir í töflunni þannig að lágamarkslaun verði nálægt 210 þúsund krónum þegar samningstíma ljúki. Vel megi við una þótt auðvitað hafi hún viljað ná meira út út samningum.
Fréttir Innlent Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglunds Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Innlent Fleiri fréttir „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglunds Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Rannsókn lokið í manndrápsmáli Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa Sláandi tölur: Kyrkingartökum og eltihrellum fer fjölgandi Mætti með steikarhníf á leikskóla Kyrkingartök og elltihrellahegðun fara vaxandi og myndband af áreitni í miðborginni Grill í ljósum logum úti á svölum Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Telja að maðurinn sé fundinn „Þetta er mjög þungt og erfitt“ „Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ „Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Eldur kviknaði í vörubíl á Reykjanesbraut Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi „Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Leit hefst á ný eftir hádegi Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Sjá meira