Læknar sviptir án kæru 20. febrúar 2005 00:01
Landlæknisembættinu bárust 243 kærur og kvartanir vegna meintra læknamistaka á síðasta ári, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis. Um þriðjungur kærumála leiðir til frekari aðgerða. "Rannsóknir í alvarlegri málum þurfa sinn tíma." Tveir læknar voru sviptir lækningaleyfi á árinu, ekki vegna læknamistaka. Sjaldgæft er að læknar séu sviptir leyfi vegna einstakra læknamistaka, segir Matthías. Einn til þrír læknar missi leyfi árlega. Hann segir sviptingu læknaleyfa oftast vera vegna óreglu, elliglapa eða því um líku. Verði læknar uppvísir að mistökum fái þeir áminningu áður en leyfi sé afturkallað. "Einstaka óhappatilvik sem upp koma eru ekki nægileg til að svipta menn lífsviðurværinu," segir Matthías. Landlæknisembættinu bárust 243 kærur á síðasta ári en um 230 árið á undan. Rannsókn er ekki lokið á öllum þeim kærum sem bárust: "Rannsókn í alvarlegri málum, þar sem mjög gaumgæfilega þarf að athuga málin, þarf sinn tíma. Þetta er svipað og gerist í öðrum löndum, oft erfitt að staðfesta að mistök hafi orðið og það gerist reyndar sjaldnast." Matthías segir nokkuð um að kærur sé settar fram í von um fjárhagsbætur. "Munurinn á læknamistökum og óhappatilvikum er til staðar," segir Matthías. "Undir mistök flokkast það sem á ekki að geta komið fyrir. Óhappatilvik geta verið margs konar, til dæmis þegar tæki bila. Það er alltaf áhætta sem í sumum tilvikum verður ekki komist hjá og ekki er hægt að álasa neinum fyrir. Hafi hins vegar verið ranglega staðið að læknisverki með hirðuleysi eða gáleysi sem á ekki að eiga sér stað, þá flokkast það undir læknamistök."
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira