Hægt að rýma miðbæinn á 20 mínútum 18. febrúar 2005 00:01
Það gæti tekið á aðra klukkustund að rýma miðbæ Reykjavíkur ef öryggi fólks þar væri ógnað þar sem ekki er til nein rýmingaráætlun. Væri hún til tæki aðeins innan við tuttugu mínútur að rýma miðborgina á menningarnótt. Aldrei áður hefur annar eins mannfjöldi safnast saman á Íslandi og á síðustu Menningarnótt í miðbæ Reykjavíkur, yfir eitt hundrað þúsund manns. Engin rýmingaráætlun er til og ef eitthvað kemur upp á, svo sem hópslagsmál, hryðjuverkahótun eða árás, eiturefnaslys eða eldsvoði svo dæmi séu tekin, gæti rýming tekið hátt á aðra klukkustund. Þetta vandamál reyndu tveir nemendur í iðnaðarverkfræði að leysa og unnu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir vikið. Þeir gerðu líkan sem líkir eftir rýmingaraðstæðum í mannmergð í miðbænum. Björn Björnsson, annar neminn sem vann að verkefninu, segir að í upphafi hafi þeir látið fólk ganga að þeim útgönguleiðum í líkaninu sem styst var í og þá hafi rýmingin tekið um klukkustund. Eftir að þeir hafi beint fólki að vissum útgönguleiðum sem þeir hefðu talið bestar hafi hins vegar tekist að stytta tímann um 55 prósent eða í 20 mínútur. Svo ef fólk veit hvert það á að fara gengur allt betur. Svona virkar líkanið. Í upphafi eru 40 þúsund manns í miðbænum. Eftir fimm mínútur eru vegfarendur rúmlega 25 þúsund, etir tíu mínútur eru þeir rúmlega 10 þúsund og eftir 15 mínútur eru aðeins tæplega þúsund manns eftir á svæðinu. Á innan við tuttugu mínútum er rýmingu lokið ef fólki er leiðbeint hvert það á að fara. Björn segir hægt að leiðbeina fólki með því að hengja upp borða eða auglýsa í blöðum og á Netinu í upplýsingum tengdum stórhátíðum. Þetta líkan er svo hægt að nota til hliðsjónar við gerð allsherjarrýmingaráætlunar fyrir miðbæinn. Björn segir aðeins tímaspursmál hvenær grípa þurfi til slíkrar áætlunar. Í fyrirsjáanlegri framtíð muni þurfa að rýma miðbæinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira