Innlent

Lánshæfismat lækkar

Á skömmum tíma hafa tvö lánshæfismatsfyrirtæki gert úttekt á stöðu Íbúðarlánasjóðs og kemur í ljós að bæði fyrirtækin telja horfur sjóðsins bæði góðar og stöðugar. Ekki er lengra en tveir mánuðir síðan matsfyrirtækið Moody´s mat lánshæfi sjóðsins AAA, sem er hæsta einkunn, en annað fyrirtæki, Standard & Poor´s, lækkar einkunn Íbúðalánasjóðs nú niður, annars vegar í AA+ vegna langtímaskuldbindinga í íslenskri mynt en AA- vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×