Þorskhængar syngja og dansa 15. febrúar 2005 00:01
Norskir fiskifræðingar hafa komist að því að þorskhængar syngja og dansa til að laða til sín hrygnur, sem vilja að þeir svilji hrogn þeirra. Auður Sóldal, fiskifræðingur við norsku Hafrannsóknastofnunina, segir í viðtali við norska útvarpið að söngurinn sé greinilega alveg nauðsynlegur því án hans líti hrygnurnar ekki við hængunum. Þeir hefja daðrið með því að tileinka sér svæði á botninum sem hentar til hrygningar og fara svo að synda þar um í mynstri sem myndar tölustafinn átta. Á meðan á þessu stendur teygja þeir uggana eins langt út frá búknum og hægt er og láta þá titra og gefa svo frá sér djúpt og karlmannlegt hljóð sem minnir einna helst á hægfara, djúpann hjartslátt. Ef þetta tekst allt vel gengur viðkomandi hængur í augun á hrygnunni sem hann hefur augastað á og þau standa saman að viðhaldi þorskstofnsins með því að hún hrygnir og hann dreifir sviljum yfir hrognin, sem brátt breytast svo í lítil þorskseiði. Þar með er líka vitað að þorskhængar svilja ekki hrogn af handahófi heldur bara frá sinni heittelskuðu. Ekki er vitað hvort parið hefur einhver samskipti eftir þetta. Þetta væri nú allt gott og blessað ef hljóðsjár kafbáta næmu ekki mökunarhljóð hænganna og þau yllu ekki uppnámi um borð þar sem sjóliðar misskilja hljóðin og halda að óvinur úr vestri eða austri sé að laumast að sér, allt eftir því hvorum megin víglínunnar viðkomandi kafbátur er.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira