Innlent

Leggst gegn vítamínbættum drykk

Lýðheilsustöð leggst gegn því að Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar verði settur á markað vegna fólasíns í drykknum. Framleiðandinn furðar sig á þessu þar sem nokkuð vantar upp á neyslu slíks vítamíns hjá þjóðinni að mati Lýðheilsustöðvar. Þá segir hann fólasín algjörlega hættulaust efni. Dreifing Kristals Plús, sem er vítamínbætt, kolsýrt vatn, var stöðvuð á dögunum þar sem leyfi skorti fyrir því að setja drykkinn á markað. Umhverfisstofnun leitaði álits Lýðheilsustöðvar sem telur ekki æskilegt að drykkurinn fari á markað þar sem í honum sé fólasín, sem er B-vítamín. Reyndar segir í áliti Lýðheilsustöðvar að bæta megi fólasínneyslu þjóðarinnar hjá öllum nema börnum. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir álit Lýðheilsustöðvar alveg út í hött, sérstaklega þar sem Ölgerðin hafi þróað drykkin með íslenskar aðstæður í huga. Þróun hans hafi byggst á rannsókn frá Lýðheilsustöð þar sem sagt hefði verið að meginþorra landsmanna skorti B-vítamín. Andri segir fólasín algjörlega skaðlaust efni sem fari út með þvagi og ekki sé hætta á ofneyslu. Engin rannsókn bendi til þess. Eins og fyrr segir er talið að bæta megi fólasínneyslu þjóðarinnar og er beinlínis mælt með því að konur á barneignaaldri auki fólasínneyslu sína. Andri segir að drykkurinn sé gerður sérstaklega fyrir þann hóp kvenna. Þess vegna finnist honum undarlegt að sama stofnun og hvetji konur til þess að taka meira af fólasíni skuli hafna drykknum. Eini hópurinn sem Lýðheilsustöð telur að ekki sé æskilegt að auka fólasínneyslu hjá eru 2-6 ára börn. Andri segir að ofskammtur af vítamínunum sé ekki hættulegur þar sem þau séu vatnsleysanleg en ástæðan fyrir því að 2-6 ára börn séu nefnd sérstaklega sé sú að þau fái nóg af fólasíni úr morgunkorni eins og Cocoa Puffs og Cheerios, sem séu fólasínbætt morgunkorn. Hann sjái það hins vegar ekki fyrir sér að þessi yngsti hópur drekki kolsýrða drykki og því finnist honum rökstuðningur Lýðheilsustöðvar alveg út í hött.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×