Leggst gegn vítamínbættum drykk 6. febrúar 2005 00:01
Lýðheilsustöð leggst gegn því að Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar verði settur á markað vegna fólasíns í drykknum. Framleiðandinn furðar sig á þessu þar sem nokkuð vantar upp á neyslu slíks vítamíns hjá þjóðinni að mati Lýðheilsustöðvar. Þá segir hann fólasín algjörlega hættulaust efni. Dreifing Kristals Plús, sem er vítamínbætt, kolsýrt vatn, var stöðvuð á dögunum þar sem leyfi skorti fyrir því að setja drykkinn á markað. Umhverfisstofnun leitaði álits Lýðheilsustöðvar sem telur ekki æskilegt að drykkurinn fari á markað þar sem í honum sé fólasín, sem er B-vítamín. Reyndar segir í áliti Lýðheilsustöðvar að bæta megi fólasínneyslu þjóðarinnar hjá öllum nema börnum. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir álit Lýðheilsustöðvar alveg út í hött, sérstaklega þar sem Ölgerðin hafi þróað drykkin með íslenskar aðstæður í huga. Þróun hans hafi byggst á rannsókn frá Lýðheilsustöð þar sem sagt hefði verið að meginþorra landsmanna skorti B-vítamín. Andri segir fólasín algjörlega skaðlaust efni sem fari út með þvagi og ekki sé hætta á ofneyslu. Engin rannsókn bendi til þess. Eins og fyrr segir er talið að bæta megi fólasínneyslu þjóðarinnar og er beinlínis mælt með því að konur á barneignaaldri auki fólasínneyslu sína. Andri segir að drykkurinn sé gerður sérstaklega fyrir þann hóp kvenna. Þess vegna finnist honum undarlegt að sama stofnun og hvetji konur til þess að taka meira af fólasíni skuli hafna drykknum. Eini hópurinn sem Lýðheilsustöð telur að ekki sé æskilegt að auka fólasínneyslu hjá eru 2-6 ára börn. Andri segir að ofskammtur af vítamínunum sé ekki hættulegur þar sem þau séu vatnsleysanleg en ástæðan fyrir því að 2-6 ára börn séu nefnd sérstaklega sé sú að þau fái nóg af fólasíni úr morgunkorni eins og Cocoa Puffs og Cheerios, sem séu fólasínbætt morgunkorn. Hann sjái það hins vegar ekki fyrir sér að þessi yngsti hópur drekki kolsýrða drykki og því finnist honum rökstuðningur Lýðheilsustöðvar alveg út í hött.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira