Ólgan innan Íslandsbanka 29. janúar 2005 00:01
Á annan tug háttsettra starfsmanna hjá Íslandsbanka hefur horfið frá störfum á síðustu mánuðum og hefur þriðjungur þeirra ráðið sig hjá KB banka. Ólga er innan bankans vegna valdabaráttu. Valdabarátta hefur staðið yfir í Íslandsbanka um langt skeið og varð armur með Bjarna Ármannsson í broddi fylkingar ofan á. Í kjölfarið hurfu margir lykilstarfsmenn bankans á braut. Í lok desember var Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri bankans, rekinn úr starfi vegna þess sem var kallað óleysanlegur ágreiningur milli hans og Bjarna Ármannssonar forstjóra. Björn Björnsson aðstoðarforstjóri tilkynnti í gær um uppsögn sína af heilsufarsástæðum. Guðmundur Tómasson framkvæmdastjóri hætti í vikunni en hann var hægri hönd Vals Valssonar, fyrrum bankastjóra. Sölvi Sölvason, lögfræðingur á viðskiptabankasviði, hætti í haust eftir margra ára starf og fór til KB banka.Margrét Gunnarsdóttir, lögfræðingur á sama sviði, er einnig hætt ásamt Guðrúnu Ólafsdóttur. Heba Björnsdóttir forstöðumaður er einnig hætt, Sigurður Nordal réði sig til KB banka, Hulda Dóra Styrmisdóttir framkvæmdastjóri starfar ekki lengur við bankann og það gera ekki heldur Lára Sverrisdóttir, lögfræðingur í lánaeftirliti, sem fór til KB banka, og það gerði Laufey Guðjónsdóttir einnig. Brynja Þorbjörnsdóttir, sem var útibússtjóri á Akranesi, er hætt. Samtals eru þetta að minnsta kosti tólf manns og hefur þriðjungur farið til KB banka. Og sviptingarnar ná einnig inn í dótturfyrirtækið, Sjóvá-Almennar. Þar sagði Kristján Björgvinsson fjármálastjóri upp og einnig Guðmundur Jóhann Jónsson aðstoðarforstjóri í lok september. Ólafur Haukur Jónsson, framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra líftrygginga, dótturfyrirtækis Sjóva-Almennra, og Hilmar Thors aðstoðarframkvæmdastjóri sögðu upp fyrir jól. Einar Sveinsson, formaður bankaráðs Íslandsbanka, segir að það vinni yfir þúsund manns hjá bankanum og það sé ekkert óeðlilegt við það þó það verði mannabreytingar í áhöfninni á jafnstóru fleyi. Ekki náðist í Bjarna Ármannsson í dag. Ýmsar skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá bankanum, meðal annars var tilkynnt í gær að starfsmannahald yrði nú tímabundið undir stjórn Bjarna.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira