Alþjóðlegur stuðningur í glímunni 13. október 2005 15:20
Fulltrúar ítölsku verkalýðsfélaganna og Alþjóða byggingasambandsins koma til Íslands í næstu viku til að styðja íslenska verkalýðshreyfingu og kynna sér aðstæður og aðbúnað starfsmanna á Kárahnjúkum. Alþjóðlega sendinefndin fer beint að Kárahnjúkum og sest svo á fund með fulltrúum íslensku verkalýðshreyfingarinnar á föstudag. Tilgangur fundarins er að fá "siðferðilegan stuðning, afla skilnings Ítalanna á því hvað er í gangi á Kárahnjúkum og hugsanlega reyna að ná alþjóðlegu samkomulagi við Impregilo því að Impregilo starfar ekki bara hér á landi. Þetta er alþjóðlegt fyrirtæki," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Rafiðnaðarsambandið, Samiðn og Starfsgreinasambandið eru félagar í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu byggingasamböndunum. Í þessum samböndum eru líka systurfélög þessara sambanda á Ítalíu. Guðmundur er í stjórn evrópska sambandsins og formaður Samiðnar er í stjórn norræna sambandsins og hafa þeir unnið að þessum fundi. "Í gegnum þessi sambönd hefur starfsfólk sambandanna í Sviss verið beðið um að ræða við ítölsku systurfélögin og kanna hvort hægt væri að komast í færi við Impregilo á heimavelli og ná samningi við það. Þá er verið að velta fyrir sér samstarfssamningi á alþjóðlegum grundvelli. Við erum með svoleiðis samninga, t.d. við Ikea og Skanska og ýmis stærri fyrirtæki sem eru með alþjóðlega starfsemi. Við viljum kanna hvort hægt sé að fá Impregilo til að ræða við okkur á þessum nótum." Guðmundur segir að talsmenn Impregilo hafi "látið líklega niðri á Ítalíu en við ætlum að fá fulltrúa verkalýðsfélaganna hingað til að sjá með eigin augum hvað við erum að tala um." Glíman við Impregilo hafi verið heilmikil, aðeins toppurinn á ísjakanum hafi birst í fjölmiðlum.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira