Sport

Skoruðu þrjú mörk í uppbótartíma

Forysta Juventus er aftur kominn í fjögur stig í ítölsku deildinni eftir að Juve bar sigurorð af Livorno 4-2 en AC Milan gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Palermo. Inter Milan stal senunni á Ítalíu í gær þegar liðið vann Sampdoria 3-2 á heimavelli. Inter var tveimur mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir en skoruðu þrjú mörk í uppbótartíma. Alvaro Recoba skoraði sigurmarkið. Inter er í fjórða sæti með 30 stig, 13 stigum á eftir Juventus. Inter er eina liðið í deildinni sem ekki hefur tapað leik en þeir hafa gert tólf jafntefli í 18 leikjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×