Kostnaðarsamt eftirlit í Svíþjóð 14. febrúar 2005 00:01
Sænskur eftirlitsiðnaður með sjávarútvegi þar í landi er vaxinn sjávarútvegnum sjálfum yfir höfuð þar sem hann kostar meira en sem nemur aflaverðmæti sjómannanna, sem verið er að fylgjast með. Framlegð eftirlitsmanna hér á landi er mun meiri. Þetta er niðurstaða sænskra blaða- og fréttamanna í Gautaborg, sem könnuðu málið. Nú eru um það bil þúsund fiskimenn á sænskum bátum sem eru tólf metrar eða lengri en fjöldi starfsmanna sem vinnur við stjórnun og eftirlit með þessum mönnum er kominn upp í 890. Kostnaður vegna starfa eftirlitsmannanna er um 8,8 milljarðar íslenskra króna á ári, eða um hundrað milljónum meiri en aflaverðmæti sjómannanna sem þeir eru að ráskast með. Þótt Svíar láti sér ekki allt fyrir brjósti brenna þegar að eftirlitsiðnaði kemur þykir nú mörgum að hér sé nóg komið og ætlar Anna Kristin Nykvist, landbúnaðarráðhera Svía, sem jafnframt fer með sjávarútvegsmál, að kanna málið nánar. Eftirlitsiðnaður með sjávarútvegi hér á landi hefur blómstrað hin síðari ár og hafa margir útvegsmenn kvartað yfir því. En þegar skotið er lauslega á þann fjölda sem vinnur hér á landi við stjórnun og eftirlit með veiðum er ef til vill verið að tala um um það bil tvö hundruð manns. Það eru starfsmenn Fiskistofu og hluti af starfsmönnum Hafrannsóknastofnunarinnar, Landhelgisgæslunnar og sjávarútvegsráðuneytisins. Framlegð þessa hóps er margföld á við starfsbræðurna í Svíþjóð því íslensku eftirlitsmennirnir, sem eru margfalt færri en þeir sænsku, fylgjast með margfalt fleiri sjómönnum og hvað þá margföldum afla.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira