Vill hækka greiðslur vegna mistaka 14. febrúar 2005 00:01
Tryggingastofnun vill láta hækka hámarksgreiðslur til sjúklinga vegna læknamistaka en þær geta ekki orðið hærri en 5,7 milljónir króna. Dæmi eru um að sjúklingar sem verða fyrir mestu tjóni tapi milljónum vegna þessa. Þrír af tuttugu og fimm sjúklingum sem gengust undir örorkumat vegna sjúklingatryggingar fengu ekki tjón sitt bætt af fullu þar sem hámarki sjúklingatryggingar var náð. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um sjúklingatryggingar sem Una Björk Ómarsdóttir, deildarstjóri slysatryggingadeildar stofnunarinnar, hefur tekið saman. Una segir að þremenningarnir hafi fengið hámarksbætur samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu en ef þær hefðu verið reiknaðar út að fullu samkvæmt skaðabótalögum hefðu þær orðið hærri. Aðspurð hversu miklu fólk hafi tapað segir Una ekki hægt að nefna ákveðnar fjárhæðir en það sé mismunandi eftir einstaklingum og það sé m.a. miðað við tekjur. Í einhverjum tilvikum gæti tapið numið milljónum. Sjúklingatryggingar eru greiddar vegna læknamistaka eða þar sem eitthvað fer úrskeiðis við læknismeðferð án þess að neinum sé um að kenna. Í skýrslunni segir að óréttmætt sé að þeir sjúklingar sem verði fyrir minni skaða vegna læknamistaka eða skaða við læknismeðferð fái tjón sitt bætt af fullu en þeir sem líði mest fái ekki tjónið bætt þar sem hámarki bótafjárhæðar sé náð. Una segir að Tryggingastofnun telji sanngjarnara að þeir sem verði fyrir miklu tjóni fái það bætt að fullu. Það sé sárt að sjá að þeir sem verði fyrir litlu tjóni fá það bætt að fullu en þeir sem verði fyrir miklu tjóni fái aðeins takmarkaðar bætur. Tryggingastofnun annast sjúklingatryggingu fyrir sjúkrastofnanir í eigu ríkisins, svo sem sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, en auk þess bjóða þrjú vátryggingafélög með starfsleyfi hér á landi vátryggingu samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Vátryggingafélögunum þremur bárust 55 umsóknir um bætur vegna sjúklingatryggingar á árunum 2001 til 2004. Bótaskylda var samþykkt í 36 málum og greiddar bætur námu rúmum 27 milljónum. Á sama tímabili bárust Tryggingastofnun ríkisins tæpar tvö hundruð umsóknir um bætur og greiddi stofnunin um 51 milljón vegna þeirra.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira