Afnotagjöld inn í fasteignaskatta 14. febrúar 2005 00:01
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri - grænna, segist mótfallin því að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins. Hún segir hættulegt að fela framkvæmdavaldinu reksturinn og vill láta fella afnotagjöld inn í fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði og fyrirtækjum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur boðað frumvarp um breytingar á Ríkisútvarpinu. Hún hefur einungis gefið út að afnotagjöld verði afnumin en ekki hvort stofnunin verði sett á fjárlög eða innheimtur verði sérstakur nefskattur. Komið hefur fram að verið sé að bregðast við gagnrýni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, sem farið hefur yfir starfsemi útvarpsins frá því í fyrravor með tilliti til þess hvort megi það innheimta afnotagjöld jafnhliða tekjum af auglýsingastarfsemi og hvort ríkisstyrkjum sé varið í samræmi við skyldur stofnunarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir, sem situr í menntamálanefnd Alþingis, segir greinilegt að setja eigi Ríkisútvarpið á fjárlög en þar með sé það komið í heljargreipar framkvæmdavaldsins. Henni þyki yfirlýsing menntamálaráðherra hálfilla undirbyggð en hún viti ekki betur en að það sé einhvers konar nefnd eða starfshópur að vinna að því að útbúa frumvarp sem komi til með að verða lagt fram á Alþingi. Þegar það líti dagsins ljós eigi að ræða málefni Ríkisútvarpsins. Kolbrún segist tilbúin að ræða mögulegar breytingar á afnotagjöldunum en hún telji hins vegar mjög þýðingarmikið að almenningur finni fyrir því að það sé hann sem eigi Ríkisútvarpið en ekki ríkisstjórnin. Hún óttist að ef Ríkisútvarpið verði sett á fjárlög sé það endanlega komið í greipar framkvæmdavaldsins. Það telji hún hættulegt og eðlilegra sé að almenningur reki sjálfur með sínum fjármunum stofnunina sem hún telji einn af máttarstólpum íslenskrar menningar. Hún vilji breytingar í þá veru að í stað þess að innheimta afnotagjöld eins og gert sé nú þá verði þau tengd fasteignagjöldum og innheimt þannig af þeim sem eiga fasteignir, hvort sem það séu einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir. Kolbrún segist óttast að sjálfstæðismenn vilji hlutafélagavæða Ríkisútvarpið en telur ekki að framsóknarmenn muni leyfa því að gerast. Hún haldi enn í vonina að enn sé einhver dugur í framsóknarmönnum og staðið verði í ístaðinu í þeim efnum því vitað sé að um leið og Ríkisútvarpið verði hlutafélagavætt sé voðinn vís því ríkisstjórnin selji sín hlutafélög.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira