Innlent

Hræðilegt að sitja og bíða

"Við eigum þyrlu sem við keyptum fyrir um það bil einn og hálfan milljarð íslenskra króna og ég veit að hún hefur verið send út þegar skip hafa misst út neyðarbauju. En fyrst hún var ekki send út eftir sökkvandi skipi þá skil ég ekki hvað við höfum með hana að gera," sagði Torbjörn Jacobsen, þingmaður færeysku stjórnarandstöðunnar, en hann fór fyrir hópi þingmanna sem kröfðust opinberrar rannsóknar á vinnubrögðum Sjóbjörgunarsveitarinnar. Jökulfellið sökk út af Færeyjum 7. febrúar síðastliðinn. Fjórir eistneskir sjómenn fórust með skipinu. Í framhaldi af því komust Bjørn Kalsøe, sjávarútvegsráðherra Færeyja, og Djóna Weihe, yfirmaður Sjóbjörgunarsveitar Færeyja, að þeirri niðurstöðu að best væri að Djóna yrði leistur frá störfum meðan á rannsókninni stæði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær liðu tvær klukkustundir frá því að neyðarkall barst frá Jökulfelli og þar til björgunarþyrlan var send út. Í umræðum á lögþinginu í gær kom fram að skipunin um að senda þyrluna á vettvang kom ekki frá yfirmanni Sjóbjörgunarsveitarinnar heldur frá skipstjóranum á varðskipinu Vædderen. Þetta er haft eftir færeyska dagblaðinu Dimmalætting í gær. Fyrsta tilkynningin barst Sjóbjörgunarsveitinni frá neyðarbauju úr Jökulfelli en síðar barst þeim neyðarkall sem fór í gegnum Aberdeen í Skotlandi. Þá reyndi Sjóbjörgunarsveitin að ná sambandi við áhöfnina á Jökulfelli í farsíma en án árangurs. Færeyska dagblaðið Sosialurin talaði í gær við flugmann björgunarþyrlunnar sem sagði það hafa verið hræðilega tilfinningu að sitja aðgerðalaus og bíða eftir skipun eftir að neyðarköllin höfðu borist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×