Hræðilegt að sitja og bíða 4. mars 2005 00:01 "
Við eigum þyrlu sem við keyptum fyrir um það bil einn og hálfan milljarð íslenskra króna og ég veit að hún hefur verið send út þegar skip hafa misst út neyðarbauju. En fyrst hún var ekki send út eftir sökkvandi skipi þá skil ég ekki hvað við höfum með hana að gera," sagði Torbjörn Jacobsen, þingmaður færeysku stjórnarandstöðunnar, en hann fór fyrir hópi þingmanna sem kröfðust opinberrar rannsóknar á vinnubrögðum Sjóbjörgunarsveitarinnar. Jökulfellið sökk út af Færeyjum 7. febrúar síðastliðinn. Fjórir eistneskir sjómenn fórust með skipinu. Í framhaldi af því komust Bjørn Kalsøe, sjávarútvegsráðherra Færeyja, og Djóna Weihe, yfirmaður Sjóbjörgunarsveitar Færeyja, að þeirri niðurstöðu að best væri að Djóna yrði leistur frá störfum meðan á rannsókninni stæði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær liðu tvær klukkustundir frá því að neyðarkall barst frá Jökulfelli og þar til björgunarþyrlan var send út. Í umræðum á lögþinginu í gær kom fram að skipunin um að senda þyrluna á vettvang kom ekki frá yfirmanni Sjóbjörgunarsveitarinnar heldur frá skipstjóranum á varðskipinu Vædderen. Þetta er haft eftir færeyska dagblaðinu Dimmalætting í gær. Fyrsta tilkynningin barst Sjóbjörgunarsveitinni frá neyðarbauju úr Jökulfelli en síðar barst þeim neyðarkall sem fór í gegnum Aberdeen í Skotlandi. Þá reyndi Sjóbjörgunarsveitin að ná sambandi við áhöfnina á Jökulfelli í farsíma en án árangurs. Færeyska dagblaðið Sosialurin talaði í gær við flugmann björgunarþyrlunnar sem sagði það hafa verið hræðilega tilfinningu að sitja aðgerðalaus og bíða eftir skipun eftir að neyðarköllin höfðu borist.
Fréttir Innlent Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira