Haförninn á batavegi 25. janúar 2005 00:01
Ungur haförn sem verið hefur í gjörgæslu Húsdýragarðsins er óðum að fá bata en hann fór úr lið eftir að hafa flogið á rafmagnslínu í Þingvallasveit. Assan er hin glæsilegasta. Örninn er meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins en talið er að hér séu 57 fullorðin pör, auk ungfugla. Það er því afar fátítt að menn sjái haförn. Assan í Húsdýragarðinum er fimm ára gömul, hún er ekki orðin kynþroska en stór er hún; 6,7 kíló og vænghafið tveir metrar og tuttugu sentímetrar. Hún fannst neðan við rafmagnslínu í Grafningi og gat þá ekki flogið en talið er að hún hafi náðst fljótlega eftir óhappið. Við skoðun kom í ljós að annar vængurinn hafði farið úr lið og liðbönd höfðu trosnað. Vængnum var kippt í liðinn og hann svo bundinn upp til að hefta hreyfingu. Nú má segja að hún sé í sjúkraþjálfun í Húsdýragarðinum. Hún er farin að fljúga um en slasaði vængurinn sígur niður eftir stutta stund. Það er því ekki talið óhætt að sleppa henni; hún gæti að líkindum ekki veitt en vonlaust yrði að ná henni aftur. Ernir para sig til lífstíðar, sem er vel á fertugsaldurinn, og kynþroski þessa glæsilega kvenfugls er á næsta leiti. Það er því von að hún muni ekki láta sitt eftir liggja við að fjölga í arnarstofninum á Íslandi. Ekki er vanþörf á. MYND/Vísir
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira