Skriður gætu valdið flóðbylgju 23. janúar 2005 00:01
Skriður af völdum eldgosa í Atlantshafi geta komið af stað hárri flóðbylgju sem næði alla leið til Íslands, segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur. Hættur á hafsbotni og afleiðingar hamfaranna á Indlandshafi verða til umfjöllunar á málþingi jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands í vikunni. Málþingið verður haldið í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, á miðvikudag, en þá verður nákvæmlega mánuður liðinn frá því að flóðbylgja af völdum jarðskjálfta við Súmötru reið yfir lönd við Indlandshaf með skelfilegum afleiðingum. Hamfarirnar hafa beint sjónum vísindamanna að sams konar hættum annars staðar í heiminum, til dæmis í Atlantshafi. Flest flóð við Ísland verða vegna veðurs. Þótt ekki sé talið yfirvofandi að jarðskjálftar, eldgos og skriður geti valdið risaflóðbylgju við Íslandsstrendur segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur að slíkt geti þó gerst á nokkur þúsund ára fresti. Í Atlantshafi séu óstöðugar eldfjallaeyjar og til viðbótar við Ísland sé eldfjall á Jan Mayen. Mestu hættusvæðin séu hins vegar Kanaríeyjar, Azor-eyjar og Grænhöfðaeyjar og á öllum þessum stöðum séu óstöðug eldfjöll. Aðspurður hvaða afleiðingar gætu fylgt því ef það hryndi úr eldfjalli í kjölfar eldgoss segir Freysteinn að í versta tilfelli gætu myndast bylgjur sem færu yfir Atlantshafið og næðu ströndum Ameríku og Íslands með nokkurra metra hæð.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira