Rannsókn við Kárahnjúka enn ólokið 26. janúar 2005 00:01
Lögreglurannsókn á banaslysi í mars í fyrra við Kárahnjúka er enn ólokið. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir með réttarstöðu grunaðra. Lögregluyfirvöld fyrir austan sendu málið til ríkissaksóknara í október en fengu það endursent þar sem ýmsum spurningum þótti ósvarað. Slysið er rannsakað sem sakamál þar sem grunur leikur á að öryggisbúnaður hafi ekki verið viðunandi. Impregilo og undirverktaki þess, Arnarfell, höfðu fengið skriflegar athugasemdir um þá hættu sem stafaði af grjóthruni úr gljúfrinu undir Fremri-Kárahnjúk áður en slysið varð aðfaranótt mánudagsins 15. mars. Þá varð tuttugu og fimm ára starfsmaður verktaka á svæðinu fyrir grjóti úr vegg Hafrahvammagljúfurs og lést. Rannsóknin hefur dregist mjög mikið en átti þó að vera lokið í byrjun október og var málið þá sent ríkissaksóknara sem ákveður hvort ákært verður í málinu. Þar á bæ voru menn hins vegar ekki ánægðir með rannsóknina og þótti sem ýmsum spurningum væri enn ósvarað. Málið var því sent Sýslumanninum á Seyðisfirði aftur til meðferðar um miðjan desember. Vinnueftirlitið rannsakaði slysið jafnhliða lögreglu með tilliti til vinnuverndar og er að ljúka við sína skýrslu. Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, vonast til að skýrslan liggi fyrir á næstu dögum. Helgi Jensson, sýslufulltrúi á Egilsstöðum, sem hefur umsjón með lögreglurannsóknni segir að verið sé að afla þeirra gagna sem beðið hafi verið um. Hluti af því feli í sér samskipti við útlendinga sem séu farnir til síns heima og það tefji fyrir. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir með réttarstöðu grunaðra. Rannsóknin beinist að því hvort reglur um öryggi starfsmanna hafi verið brotnar og það hafi valdið slysinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira