Eiturefni utan við hús í Síðumúla 26. janúar 2005 00:01
Kútar og gámar með hættulegum og eldfimum efnum standa fyrir utan fyrirtæki við Síðumúla 35 þar sem hver sem er getur nálgast þau. Nágrannar hafa ítrekað kvartað og bæði Eldvarnareftirlitið og heilbrigðisyfirvöld hafa haft afskipti af eigendunum. Eldvarnareftirlitið hafði afskipti af fyrirtækinu fyrir einu og hálfu ári eftir að nágrannar höfðu kvartað. Svæðið var skoðað og gerð krafa um að eigendur skiluðu brunavarnaúttekt og gerðu úrbætur. Samkvæmt eldvarnarkröfum verður að geyma eiturefni í læstu og loftræstu rými. Eigendur brugðust við með því að flytja efnin út fyrir húsið og þar með lauk afskiptum Eldvarnareftirlitisins. En þótt loftræstingin sé vissulega góð fyrir framan Síðumúla 35 fer minna fyrir því að reynt sé að hindra að hver sem er geti nálgast þau hættulegu efni sem þarna eru geymd. Þau standa fyrir utan fyrirtækið óvarin að öðru leyti en því að sumum plastílátunum hefur verið staflað á bretti og plasti eða snæri brugðið yfir. Merkingarnar leyna sér ekki, þarna er um að ræða eldfim, ætandi, eitruð og jafnvel lífshættuleg efni. Heilbrigðisyfirvöld í borginni hafa einnig látið til sín taka í málinu, fyrst sumarið 2003 þegar kvartað var yfir eiturefnum á lóðinni. Í febrúar í fyrra bárust aftur kvartanir frá nágrönnum vegna hættulegra efna í portinu. Gerð var krafa um að svæðið yrði girt af í lok júní í fyrra. Í dag er búið er að setja upp girðingu en hún nær ekki alla leið þannig að öllum er frjálst að valsa inn og út. Í dag var krafan ítrekuð. Heilbrigðiseftirlitið gerði þá athugasemdir við mikið af eiturefnum fyrir framan húsið en eigendur báru því við ammoníakskútar sem eru hættulegasta efnið á lóðinni væru tómir. Gerð var athugasemd við önnur hættuleg efni sem voru á glámbekk en þau eiga samkvæmt fyrri kröfum að vera geymd í læstum gámi eða innan girðingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira