Geti sett á sölubann á veiðibráð 26. janúar 2005 00:01
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingu á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu er sagt að í frumvarpinu sé lagt til að umhverfisráðherra verði heimilt að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að ráðherra geti við tilteknar aðstæður bannað sölu á veiðibráð. Frumvarpið er liður í þeim áformum að rjúpnaveiðar verði heimilar á ný haustið 2005. Tildrög málsins eru þau að í júlímánuði 2003 ákvað Siv Firðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, að friða rjúpu frá og með árinu 2003 til og með 2005 vegna bágs ástands stofnsins. Við talningu á rjúpu vorið 2004 kom síðan fram að stofninn hafði tvöfaldast á milli áranna 2003 og 2004. Í framhaldi af niðurstöðum talningarinnar ákvað umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir að fela svokallaðri rjúpnanefnd að gera tilllögu að frumvarpi til laga um breytingu á áðurnefndum lögum með það að markmiði að tryggja að rjúpnaveiðar yrðu sjálfbærar þegar þær hæfust á ný til að ekki þyfrti að grípa til veiðibanns aftur. Í nefninni eiga sæti fulltrúar umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Fuglaverndarfélags Íslands, Skotveiðifélags Íslands og Bændasamtaka Íslands. Um tillöguna ríkti full eining meðal nefndarmanna, segir í tilkynningunni. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að umhverfisráðherra verði heimilt, þegar friðun einstakra fuglategunda er aflétt, að takamarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins. Enn fremur að umhverfisráðherra verði heimilt að banna sölu á afurðum þeirra fugla sem undir lögin falla þ.e.a.s. á veiðibráð og afurðum þeirra.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira